Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 745/2023

Nr. 745/2023 28. júní 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 472/2014 um samruna sjóða, skipan höfuðsjóða og fylgisjóða og tilkynningaraðferð.

1. gr.

Við 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl., svohljóðandi: III. kafli gildir um sérhæfða sjóði fyrir almenna fjárfesta sem reknir eru á formi höfuðsjóða eða fylgisjóða og rekstraraðila þeirra, sbr. undirkafla C í X. kafla laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á inngangstexta 19. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir tilvísuninni „66. gr. laga nr. 116/2021“ kemur: og 92. gr. laga nr. 45/2020.
  2. Á eftir tilvísuninni „2. mgr. 89. gr. laga nr. 116/2021“ kemur: og 3. mgr. 96. gr. a. laga nr. 45/2020.

 

3. gr.

Á eftir tilvísuninni „1. mgr. 91. gr. laga nr. 116/2021“ í inngangstextum 26.-30. gr. reglugerðar­innar kemur: og 1. mgr. 96. gr. c. laga nr. 45/2020.

 

4. gr.

Á eftir tilvísuninni „92. gr. laga nr. 116/2021“ í f-lið 28. gr. og f-lið 35. gr. reglugerðarinnar kemur: eða 96. gr. d. laga nr. 45/2020.

 

5. gr.

Á eftir tilvísuninni „2. mgr. 91. gr. laga nr. 116/2021“ í d-lið 28. gr. reglugerðarinnar kemur: eða 2. mgr. 96. gr. c. laga nr. 45/2020.

 

6. gr.

Í stað tilvísunarinnar „1. mgr. 25. gr.“ í inngangstexta 31. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. mgr. 91. gr. laga nr. 116/2021 og 1. mgr. 96. gr. c. laga nr. 45/2020.

 

7. gr.

Á eftir tilvísuninni „91. gr. laga nr. 116/2021“ tvisvar í 32. gr. og í i-lið c-liðar 43. gr. reglugerðarinnar kemur: og 96. gr. c. laga nr. 45/2020.

 

8. gr.

Á eftir tilvísuninni „3. mgr. 91. gr. laga nr. 116/2021“ í 33. gr., inngangstextum 34.-37. gr., 2. mgr. 44. gr. og 2. mgr. 47. gr. reglugerðarinnar kemur: og 3. mgr. 96. gr. c. laga nr. 45/2020.

 

9. gr.

Á eftir tilvísuninni „4. mgr. 91. gr. laga nr. 116/2021“ í d-lið 35. gr. reglugerðarinnar kemur: og 4. mgr. 96. gr. c. laga nr. 45/2020.

 

10. gr.

Á eftir tilvísuninni „90. gr. laga nr. 116/2021“ í iv-lið a-liðar 1. mgr. 39. gr. og iv-lið b-liðar 1. mgr. 41. gr. reglugerðarinnar kemur: eða 96. gr. b. laga nr. 45/2020.

 

11. gr.

Á eftir tilvísuninni „b-lið 1. mgr. 92. gr. laga nr. 116/2021“ í inngangstexta b-liðar 1. mgr. 39. gr. og inngangstexta c-liðar 1. mgr. 41. gr. reglugerðarinnar kemur: eða b-lið 1. mgr. 96. gr. d. laga nr. 45/2020.

 

12. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 39. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir tilvísuninni „a-lið 1. mgr. 92. gr. laga nr. 116/2021“ í inngangstexta a-liðar 1. mgr. kemur: eða a-lið 1. mgr. 96. gr. d. laga nr. 45/2020.
  2. Á eftir tilvísuninni „2. mgr. 56. gr. laga nr. 116/2021“ í iii-lið a-liðar 1. mgr. kemur: og 86. gr. laga nr. 45/2020.

 

13. gr.

Á eftir tilvísuninni „96. gr. laga nr. 116/2021“ í 3. mgr. 40. gr. og 2. mgr. 42. gr. reglugerðar­innar kemur: eða 96. gr. h. laga nr. 45/2020.

 

14. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 41. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir tilvísuninni „4. mgr. 92. gr. laga nr. 116/2021“ í inngangstexta 1. mgr. kemur: eða 4. mgr. 96. gr. d. laga nr. 45/2020.
  2. Á eftir tilvísuninni „83. gr. laga nr. 116/2021“ í 4. mgr. kemur: eða 3. málsl. 1. mgr. 84. gr. laga nr. 45/2020.

 

15. gr.

Á eftir tilvísuninni „3.-5. mgr. 92. gr. laga nr. 116/2021“ í 3. mgr. 42. gr. reglugerðarinnar kemur: eða 3.-5. mgr. 96. gr. d. laga nr. 45/2020.

 

16. gr.

Á eftir tilvísuninni „93. gr. laga nr. 116/2021“ í inngangstexta 43. gr. reglugerðarinnar kemur: og 96. gr. e. laga nr. 45/2020.

 

17. gr.

Á eftir tilvísuninni „91. gr. laga nr. 116/2021“ tvisvar í 1. mgr. 44. gr. og tvisvar í 1. mgr. 47. gr. reglugerðarinnar kemur: eða 96. gr. c. laga nr. 45/2020.

 

18. gr.

Á eftir tilvísuninni „4. mgr. 93. gr. laga nr. 116/2021“ í inngangstexta 45. gr. reglugerðarinnar kemur: og 4. mgr. 96. gr. e. laga nr. 45/2020.

 

19. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 46. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir tilvísuninni „94. gr. og 55. gr. laga nr. 116/2021“ í 2. mgr. kemur: og 96. gr. f. og 45. gr. a. laga nr. 45/2020.
  2. Á eftir tilvísuninni „2. mgr. 94. gr. laga nr. 116/2021“ í e-lið 1. mgr. og 3. mgr. kemur: og 2. mgr. 96. gr. f. laga nr. 45/2020.

 

20. gr.

Á eftir tilvísuninni „96. gr. laga nr. 116/2021“ í 47. gr. a. reglugerðarinnar kemur: og 96. gr. h. laga nr. 45/2020.

 

21. gr.

48. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

 

22. gr.

Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist: og 96. gr. a. og 117. gr. laga nr. 45/2020.

 

23. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 96. gr. a. og 117. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, og 1. mgr. 134. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. júní 2023.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.


B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2023