Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1641/2021

Nr. 1641/2021 28. desember 2021

AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu, persónuafslátt og skattfrelsismark erfðafjárskatts árið 2022.

Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts sam­kvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2022 verður 17% af tekjuskattsstofni að 4.445.783 kr., 23,5% af tekjuskattsstofni frá 4.445.784 kr. að 12.481.275 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 12.481.276 kr. Meðalútsvar á árinu 2022 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,45%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2022 verður því 31,45% af tekjuskattsstofni að 4.445.783 kr., 37,95% af tekjuskattsstofni frá 4.445.784 kr. að 12.481.275 kr. og 46,25% af tekjuskattsstofni frá 12.481.276 kr.

Samkvæmt A-lið 67. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða LXI, laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2022 vera 646.993 krónur, eða 53.916 krónur að meðaltali á mánuði.

Samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 2. gr. laga um erfðafjárskatt, nr. 14/2004, skal skattfrelsismark erfðafjár­skatts í skattstofni dánarbús á árinu 2022 vera 5.255.000 kr.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. desember 2021.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2021