Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 817/2019

Nr. 817/2019 2. september 2019

REGLUGERÐ
um (17.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast átta nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/619 frá 20. apríl 2018 um að samþykkja ekki PHMB (1415; 4.7) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1, 5 og 6, sem vísað er til í tl. 12zzzzzl, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 182/2018, þann 21. september 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 20. desember 2018, bls. 190-191.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1129 frá 13. ágúst 2018 um að samþykkja asetamípríð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12zzzzzm, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2018, þann 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 20. desember 2018, bls. 90-93.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1130 frá 13. ágúst 2018 um að samþykkja sýpermetrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12zzzzzn, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2018, þann 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 20. desember 2018, bls. 94-97.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1131 frá 13. ágúst 2018 um að samþykkja penflúfen sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8, sem vísað er til í tl. 12zzzzzo, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2018, þann 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 20. desember 2018, bls. 98-100.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1292 frá 25. september 2018 um að samþykkja sýfenótrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöru­flokki 18, sem vísað er til í tl. 12zzzzzt, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efna­hags­­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2019, þann 29. mars 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 31 frá 18. apríl 2019, bls. 568-570.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/157 frá 6. nóvember 2018 um breyt­ingu á II. viðauka við framselda reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 um vinnuáætlunina um kerfis­bundna athugun á öllum fyrirliggjandi virkum efnum sem sæfivörur innihalda og um getur í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 12nza, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2019, þann 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 29. maí 2019, bls. 66-85.
  7. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1532 frá 7. september 2017 um umfjöllun álitamála varðandi samanburðarmat á blóðstorkuheftandi nagdýraeitri í sam­ræmi við 5. mgr. 23. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 528/2012, sem vísað er til í tl. 20, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 229/2017, þann 15. desember 2017. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58 frá 18. júlí 2019, bls. 168-173.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/227 frá 28. nóvember 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 að því er varðar tilteknar sam­setn­ingar virkra efna/vöruflokka sem lögbært yfirvald í Bretlandi hefur verið tilnefnt fyrir sem lög­bært matsyfirvald, sem vísað er til í tl. 20, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efna­hagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 152/2019, þann 14. júní 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 58 frá 18. júlí 2019, bls. 36-56.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/619 frá 20. apríl 2018 um að samþykkja ekki PHMB (1415; 4.7) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöru­flokkum 1, 5 og 6.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1129 frá 13. ágúst 2018 um að samþykkja asetamípríð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1130 frá 13. ágúst 2018 um að samþykkja sýpermetrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1131 frá 13. ágúst 2018 um að samþykkja penflúfen sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 8.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1292 frá 25. september 2018 um að samþykkja sýfenótrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/157 frá 6. nóvember 2018 um breytingu á II. viðauka við framselda reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 um vinnuáætlunina um kerfisbundna athugun á öllum fyrirliggjandi virkum efnum sem sæfivörur innihalda og um getur í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012.
  7. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1532 frá 7. september 2017 um umfjöllun álitamála varðandi samanburðarmat á blóðstorkuheftandi nagdýraeitri í sam­ræmi við 5. mgr. 23. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 528/2012.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/227 frá 28. nóvember 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 að því er varðar tilteknar samsetningar virkra efna/vöruflokka sem lögbært yfirvald í Bretlandi hefur verið tilnefnt fyrir sem lögbært matsyfirvald.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 2. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 16. september 2019