Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 416/2016

Nr. 416/2016 29. apríl 2016

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 808/2014 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 884/2014 frá 13. ágúst 2014 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum frá tilteknum þriðju löndum vegna mengunaráhættu af völdum aflatoxína og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1152/2009.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/24 frá 8. janúar 2016 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á jarðhnetum frá Brasilíu, Capsicum annuum og múskati frá Indlandi og múskati frá Indónesíu og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 669/2009 og (ESB) nr. 884/2014.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/24 er birt sem fylgiskjal við reglu­gerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2016