1. gr.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga skal ákvarða og innheimta sorpgjald fyrir söfnun og meðhöndlun úrgangs, samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.
Þá er sveitarfélaginu heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna.
2. gr.
Sorpgjald er lagt á hverja íbúð í Vogum og er það innheimt með fasteignagjöldum eða á annan hátt eftir því sem við verður komið og þá með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Gjaldið nýtur lögveðsréttar í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga.
3. gr.
Sorpgjald fer eftir rúmmáli þeirra sorpíláta sem eru við heimili og er sem hér segir:
Stærð sorpíláta |
Úrgangsflokkur |
Sorpgjald á ári, kr. |
140 lítrar |
Lífrænt |
9.800 |
240 lítrar |
Almennt/lífrænt, tvískipt tunna |
40.200 |
240 lítrar |
Almennt sorp |
55.800 |
240 lítrar |
Pappír |
9.800 |
240 lítrar |
Plast |
9.800 |
660 lítrar |
Almennt sorp |
153.500 |
660 lítrar |
Pappír |
26.900 |
660 lítrar |
Plast |
26.900 |
Breytingargjald vegna breytinga á sorpílátum kr. 3.500
Ósk um breytingar á tunnufjölda þarf að beina til Kölku fyrir 15. hvers mánaðar og mun innheimta frá og með 1. næsta mánaðar taka mið af því. Breytingar eiga einugis við þau heimili sem eru með tunnur umfram það sem lög segja til um.
4. gr.
Fast gjald á hverja íbúðareiningu kr. 18.000 til innheimtu á allt að 25% af heildarkostnaði sveitarfélagsins.
5. gr.
Umhverfis- og skipulagssviði Sveitarfélagsins Voga er heimilt samkvæmt gjaldskrá þessari að leggja gjöld á þá aðila sem verða uppvísir að því að fleygja sorpi og úrgangi á víðavangi eða á jarðvegstipp fyrir útlögðum kostnaði við hreinsun.
6. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga 13. desember 2023, staðfestist hér með skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og skv. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og öðlast gildi 1. janúar 2024. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1690/2022.
Samþykkt á 214. fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga, 13. desember 2023.
Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri.
|