Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1242/2024

Nr. 1242/2024 3. október 2024

GJALDSKRÁ
um meðhöndlun úrgangs í Ísafjarðarbæ.

1. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er heimilt að ákvarða og innheimta gjald fyrir söfnun og með­höndlun úrgangs, samkvæmt 16. gr. samþykktar nr. 1033/2023 um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, í samræmi við ákvæði 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Þá er Ísafjarðarbæ heimilt að innheimta gjald fyrir alla aðra meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna.

 

2. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að innheimt verði árgjald fyrir hvert ílát á heimili í samræmi við eftirfarandi gjaldskrá:

 

Gjöld vegna sorpíláta Ílát sem eru ≤ 10 m frá hirðubíl Ílát sem eru > 10 m frá hirðubíl
Sorpílát með innra hólfi
Blandaður úrgangur með innra hólfi fyrir lífrænan úrgang, 240 l 28.270 kr. 42.405 kr.
Pappír með innra hólfi fyrir plast, 240 l 18.810 kr. 28.215 kr.
Sorpílát fyrir blandaðan úrgang
Blandaður úrgangur, 120 l 25.740 kr. 38.610 kr.
Blandaður úrgangur, 240 l 36.850 kr. 55.275 kr.
Blandaður úrgangur, 360 l 55.275 kr. 82.913 kr.
Blandaður úrgangur, 660 l 101.200 kr. 151.800 kr.
Blandaður úrgangur, 1.100 l 168.520 kr. 252.780 kr.
Sorpílát fyrir lífúrgang
Lífúrgangur, 120 l 14.190 kr. 21.285 kr.
Lífúrgangur, 240 l 28.270 kr. 42.405 kr.
Sorpílát fyrir pappír
Pappír, 120 l 13.200 kr. 19.800 kr.
Pappír, 240 l 18.810 kr. 28.215 kr.
Pappír, 360 l 28.215 kr. 42.323 kr.
Pappír, 660 l 51.920 kr. 77.880 kr.
Pappír, 1.100 l 86.460 kr. 129.690 kr.
Sorpílát fyrir plast
Plast, 120 l 13.200 kr. 19.800 kr.
Plast, 240 l 18.810 kr. 28.215 kr.
 
 
Önnur gjöld
Kostnaður vegna breytinga á ílátum 4.000 kr.
Endurnýjunargjald tunnu 240 l með flutningi á staðfang Samkvæmt gjaldskrá verktaka
Auka hirðing 8.030 kr.

 

Auk þess hefur bæjarstjórn ákveðið að fast gjald fyrir rekstur grenndar- og söfnunarstöðva og annan fastan kostnað verði 39.820 kr. fyrir heimili og 19.910 kr. fyrir sumarbústaði og íbúðar­húsnæði með ákvæði um takmörkun á íveru vegna snjóflóðahættu.

Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignagjöldum.

 

3. gr.

Móttöku- og urðunargjald rekstraraðila á endurvinnslustöð:

a. Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, heyrúlluplast, ýmis spilliefni og úrelt öku­tæki.
b. Íbúar Ísafjarðarbæjar þurfa ekki að greiða móttökugjald fyrir garðaúrgang.
c. Gjald fyrir móttöku í endurvinnslustöð í Ísafjarðarbæ er:
  Blandaður/grófur úrgangur 40 kr./kg
  Timbur 60 kr./kg

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi sem er samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, staðfestist samkvæmt heimild 16. gr. samþykktar um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, skv. lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, til þess að öðlast gildi 1. janúar 2025. Jafn­framt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1474/2023.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 3. október 2024.

 

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 11. nóvember 2024