1. gr.
3. gr. reglnanna orðast svo:
Miðstöð doktorsnáms og doktorsnámsráð.
Miðstöð doktorsnáms við Háskólann á Akureyri heyrir beint undir skrifstofu rektors og fer með málefni doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna við háskólann. Stjórn Miðstöðvar doktorsnáms, sem hér eftir kallast doktorsnámsráð, hefur yfirumsjón með framkvæmd doktorsnáms, fylgir eftir settum viðmiðum og gæðakröfum um námið og er vettvangur fyrir umræðu og samráð. Í ráðinu sitja sex fulltrúar skipaðir af rektor. Einn tilnefndur af rektor sem formaður, þrír fulltrúar tilnefndir af forsetum fræðasviða háskólans, einn frá hverju sviði og tveir fulltrúar doktorsnema sem tilnefndir eru úr og af þeirra hópi. Skipa skal varafulltrúa fyrir hvern og einn fulltrúa í ráðinu. Gæta skal kynjajafnvægis við skipan þeirra. Fulltrúar fræðasviða skulu vera akademískir starfsmenn með hæfismat og með hæfni til að leiðbeina nemum til doktorsgráðu ásamt því að hafa víðtæka þekkingu á doktorsnámi. Formaður doktorsnámsráðs skal hafa doktorspróf og akademískt hæfi sem prófessor, hæfni til að leiðbeina nemum til doktorsgráðu ásamt því að hafa víðtæka þekkingu á doktorsnámi.
Rektor skipar forstöðumann Miðstöðvar doktorsnáms við Háskólann á Akureyri og setur honum erindisbréf. Forstöðumaður skal hafa doktorspróf ásamt því að hafa víðtæka þekkingu á doktorsnámi og rannsóknum. Forstöðumaðurinn tekur saman upplýsingar um doktorsnámið og gefur út rafræna handbók með öllum nauðsynlegum upplýsingum fyrir doktorsnema og leiðbeinendur. Forstöðumaðurinn vinnur náið með sviðum, deildum, gæðaráði og stjórnsýslu háskólans. Háskólaskrifstofa, sviðin og aðilar sem veita rannsóknaþjónustu, sinna stjórnsýsluverkefnum fyrir Miðstöð doktorsnáms.
Doktorsnámsráð fjallar um umsóknir og meðferð þeirra, samþykkir eða hafnar umsóknum um doktorsnám og fylgist náið með framkvæmd og gæðum náms og kennslu. Við atkvæðagreiðslur í doktorsnámsráði skal meirihluti ráða og hefur formaður oddaatkvæði falli atkvæði jöfn. Doktorsnámsráð undirbýr tillögur varðandi inntöku doktorsnema og skipun leiðbeinenda, doktorsnefnda, matsnefnda og andmælenda. Doktorsnámsráð veitir háskólaráði umsagnir um hæfni fræðasviða/undirflokka til að bjóða upp á doktorsnám.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglnanna:
- á eftir orðinu „doktorsnáms“ í fyrirsögn koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
- á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í 1. málsl. koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
- á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í síðari málsl. koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
3. gr.
Á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í 1. mgr. 6. gr. reglnanna koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- á eftir orðunum „Miðstöðvar doktorsnáms“ í b-lið koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
- á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í e-lið koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
- á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í f-lið koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglnanna:
- á eftir orðunum „Miðstöðvar doktorsnáms“ í fyrirsögn koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
- á eftir orðunum „Miðstöðvar doktorsnáms“ í 1. málsl. koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
6. gr.
Á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í 1. mgr. 9. gr. reglnanna koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
7. gr.
Á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í 1. mgr. 10. gr. reglnanna koma orðin: og stjórnsýsla rannsókna.
8. gr.
Á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í 2. mgr. 11. gr. reglnanna koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
9. gr.
Á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í 1. mgr. 15. gr. reglnanna koma orðin: og stjórnsýslu rannsókna.
10. gr.
Á eftir orðunum „Miðstöð doktorsnáms“ í 1. mgr. 17. gr. reglnanna koma orðin: og stjórnsýsla rannsókna.
11. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði, eru settar samkvæmt heimild í 7. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla, 18. og 22. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 3. gr. reglna nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri og taka gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Háskólanum á Akureyri, 16. júní 2021.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
|