Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1319/2013

Nr. 1319/2013 20. nóvember 2013
SAMÞYKKT
um gatnagerðargjald í Seyðisfjarðarkaupstað.

1. gr.

Almenn heimild.

Af öllum nýbyggingum og stækkunum eldri húsa í þéttbýli í Seyðisfjarðarkaupstað, hvort sem er á eignarlóðum eða leigulóðum, skulu lóðarhafar greiða til sveitarfélagsins gatna­gerðargjald samkvæmt samþykkt þessari, sbr 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Stofngjöld fráveitu og vatnsveitu og byggingarleyfisgjöld eru innheimt sérstak­lega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi.

2. gr.

Ráðstöfun gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og ann­arra gatnamannvirkja.

Tengi- og heimæðargjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi.

3. gr.

Gjaldstofn gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.

Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð. Gjald­stofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:

  1. Þegar sveitarfélagið úthlutar lóð eða byggingarrétti á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa sam­kvæmt samþykktum aðalteikningum.
  2. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, er við útgáfu byggingarleyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.

Við álagningu skv. b-lið 2. mgr. skal miða við stærð húss samkvæmt samþykktum upp­dráttum og ÍST 50.

4. gr.

Útreikningur gatnagerðargjalds.

Við álagningu gatnagerðargjalds skv. 3. gr. skal gatnagerðargjald reiknað út frá fjölda fermetra byggingar samkvæmt samþykktum aðalteikningum, hvort sem um er að ræða viðbyggingu, endurbyggingu, færslu á milli flokka, eða önnur tilvik.

Af hverjum fermetra skal greiða ákveðinn hundraðshluta byggingarkostnaðar pr. fer­metra í vísitöluhúsi fjölbýlis eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hag­stofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987. Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarð­ast eftir hústegund svo sem hér segir:

 

Einbýlishús með eða án bílageymslu

6,50%

 

Par-, rað- og keðjuhús, með eða án bílageymslu

6,00%

 

Fjölbýlishús með eða án bílageymslu

4,00%

 

Verslunar-, skrifstofu- og þjónustuhúsnæði

5,20%

 

Iðnaðar- og geymsluhúsnæði og annað atvinnuhúsnæði

4,50%

 

Aðrar byggingar

3,00%

Fjárhæðir taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á bygg­ingar­kostnaði vísitöluhússins (185.536 kr./m², byggingarvísitala 118,7 stig fyrir október 2013).

5. gr.

Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.

Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:

  1. Óeinangruð hús, minni en 10 fermetrar.
  2. Óupphituð svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 fermetrar eða minni.
  3. Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar sem aðeins er gengið í innan frá.

6. gr.

Sérstök lækkunarheimild gatnagerðargjalds.

Sveitarstjórn er heimilt skv. 6. gr. laga nr. 153/2006 að lækka eða fella niður gatna­gerðar­gjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður.

7. gr.

Gjalddagar og greiðsluskilmálar.

Gjalddagar gatnagerðargjalds skulu vera sem hér segir:

Við lóðarúthlutun skal greiða 50% gatnagerðargjalds. Þó skal einungis greiða 20% hafi gatan ekki verið lögð bundnu slitlagi þegar lóðarúthlutun fer fram og 30% þegar gatan hefur verið lögð bundnu slitlagi. Við útgáfu byggingarleyfis skal greiða 25% og þegar hús er fokhelt 25%.

Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

Hafi gjöldin eigi verið greidd innan ofangreinds frests, fellur úthlutun lóðarinnar úr gildi.

Umsækjandi lóðar, sem fengið hefur sömu lóð úthlutað á ný og greiðir ekki innan mán­aðar gatnagerðargjald, fær ekki úthlutað lóð í þriðja sinn, nema fyrir liggi greiðsla gatna­gerðar­gjalds.

Af gjaldföllnu gatnagerðargjaldi skulu greiðast dráttarvextir, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.

8. gr.

Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Lögveðsréttur.

Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald er ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggt með lögveðsrétti í við­komandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

9. gr.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:

 

a)

Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð.

 

b)

Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 30 daga, vegna endurgreiðslu skv. a-lið, sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 30 daga frá því að bygg­ingar­leyfis­hafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt með verðbótum, án vaxta, miðað við breytingu á vísi­tölu neysluverðs frá því lóðarhafi greiddi gatnagerðargjaldið til endurgreiðsludags.

Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

10. gr.

Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.

Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðar­eigendur hafa gert við Seyðisfjarðarkaupstað fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmálar varðandi gatnagerðargjald, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tíma­mörk og lóðarhafi og lóðareigandi hafa undirgengist, fer eftir þágildandi gjaldskrám.

11. gr.

Ýmis ákvæði. Gildistaka

Samþykktin er samin og samþykkt af bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar, skv. heimild í lögum nr. 153/2006 um gatnagerðargjald.

Samþykktin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá um gatnagerðargjald í Seyðisfjarðarkaupstaði.

Samþykkt af bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar, 20. nóvember 2013.

Vilhjálmur Jónsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 19. febrúar 2014