Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1432/2020

Nr. 1432/2020 4. desember 2020

REGLUR
ríkisskattstjóra um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2021.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2021 eru settar skv. 118. gr. nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2021.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2021 er sem hér segir:

 

Tegund

Krónur

Eining

Mjólk   97   pr. lítra
Egg 513 pr. kg
Kartöflur 115 pr. kg
Rófur 161 pr. kg
Gulrætur 352 pr. kg
Lambakjöt 448 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 159 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 110 pr. kg
Ungnautakjöt 599 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 405 pr. kg
Folaldakjöt 314 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 116 pr. kg
Grísakjöt 442 pr. kg
Annað svínakjöt 220 pr. kg
Kjúklingar 387 pr. kg
Annað fuglakjöt 634 pr. kg
Lax og silungur 719 pr. kg
Annar fiskur 332 pr. kg

 

Reykjavík, 4. desember 2020.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2020