Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1177/2020

Nr. 1177/2020 25. nóvember 2020

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 731/2020, um byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2020/2021.

1. gr.

Í stað tölunnar „4.617“ í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 4.810.

 

2. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Aflaheimildir skv. 1. gr. skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gull­karfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:

 Tegundir Tonn upp úr sjó Þorskígildistonn
 Þorskur 4.029 3.384
 Ýsa    682    521
 Ufsi 1.073    565
 Steinbítur   155     76
 Gullkarfi   300    213
 Keila     30      10
 Langa     88      41
 Samtals: 6.357  4.810

 

3. gr.

Í stað tölunnar „4.617“ í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 4.810.

 

4. gr.

Lokamálsliður stafliðar A í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiðiárið 2019/2020 að teknu tilliti til hlutfalls samdráttar í heildar­aflaheim­ildum milli fiskveiðiáranna 2019/2020 og 2020/2021.

 

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. nóvember 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. nóvember 2020