Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 691/2021

Nr. 691/2021 11. júní 2021

REGLUGERÐ
um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að feng­inni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á sam­komum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

 

2. gr.

Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 15. júní 2021 og gildir til og með 29. júní 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loft­fara, skipa í millilanda­ferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofn­ana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímu­skyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2015 og síðar. Grímuskylda skv. 2. mgr. 4. gr. á ekki við börn sem fædd eru 2005 og síðar.

Reglugerð þessi tekur til skólastarfs eftir því sem við á.

 

3. gr.

Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglu­gerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 300 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem standandi eða sitjandi viðburða og einkasamkvæma.
  4. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 300 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 300 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að taka við fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. skal hámarksgestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum og sund- og baðstöðum miðast við leyfilegan hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sama á við um tjald­svæði, skíðasvæði og söfn eftir því sem við á. Sé hámarksfjöldi gesta í heilsu- og líkamsræktar­stöðvum og sund- og baðstöðum ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við þann fjölda sem fataskipti­rými gerir ráð fyrir.

 

4. gr.

Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., hvort sem er innandyra eða utandyra, skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 1 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Íþróttir og sviðslistir sem krefjast meiri nálægðar eða snertingar eru undanþegnar nálægðartakmörkun. Þá gilda nálægðartakmörk ekki um sitjandi áhorf­endur á viðburðum, sem ekki sitja andspænis hver öðrum, enda beri þeir andlitsgrímur nema þegar neytt er matar eða drykkjar.

Andlitsgrímur skal nota þar sem húsnæði er illa loftræst eða ekki er unnt að tryggja nálægðar­takmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigu­bifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, starf­semi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambæri­legri starfsemi.

Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðla­samtakanna (CEN). Sóttvarna­læknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma sam­kvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótt­hreinsa snerti­fleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem fengið hafa COVID-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsu­fars.

Á þeim stöðum þar sem er grímuskylda skulu einstaklingar skv. 3. mgr. sýna vottorð um undan­þágu frá grímuskyldu, auk skilríkja sé þess krafist.

 

5. gr.

Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, svo sem veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, spilasalir og spilakassar skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 00.00 alla daga vik­unnar og skulu þeir fylgja ákvæðum 3. og 4. gr. Í því felst að ekki er heimilt að hleypa inn nýjum viðskipta­vinum eftir kl. 00.00 og skulu þeir hafa yfirgefið staðinn eigi síðar en kl. 01.00. Gestir mega vera að hámarki 150 í rými og skulu vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Gestir skulu skráðir á borð undir nafni, kennitölu og símanúmeri. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 00.00.

Í heilsu- og líkamsræktarstöðvum skulu viðskiptavinir skráðir fyrir fram.

 

6. gr.

Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undan­þegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heim­sóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað. Heimilt er að líta til þess hvort starfsfólk og/eða heimilisfólk sé bólusett gegn COVID-19.

 

7. gr.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum. Þá skal tryggja góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.

Í búningsaðstöðu og annarri aðstöðu vegna íþróttaiðkunar og sviðslistastarfsemi skal þrífa reglu­lega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loft­ræsting sé í lagi.

Á heilsu- og líkamsræktarstöðvum skal sótthreinsa tæki og áhöld milli notenda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaði vegna COVID-19.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

 

8. gr.

Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heil­brigðis­starfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkra­flutninga, hjálpar­liðs almannavarna eða slökkvi­liða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti.

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smit­vörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarna­lækni um beiðnir um undanþágu.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 587/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 11. júní 2021.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Rögnvaldur G. Gunnarsson.


B deild - Útgáfud.: 11. júní 2021