Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1518/2023

Nr. 1518/2023 12. desember 2023

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá fyrir sorphirðu í Akureyrarbæ, nr. 31/2020.

1. gr.

1. mgr. 4. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Sorphirðugjald á íbúð er 50.268 kr.

 

2. gr.

4. mgr. 4. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Innifalið í sorphirðugjaldi er móttaka á gjaldskyldu flokkuðu sorpi til eyðingar og endurvinnslu, á endurvinnslustöð gámasvæðis að Réttarhvammi, gegn framvísun 16 skipta klippikorts, sem fæst árlega. Hvert klipp gildir fyrir 0,25 m³, sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Aukakort fyrir einstak­linga kosta: 16 skipta klippikort kr. 11.300, 8 skipta klippikort kr. 5.650.

 

3. gr.

1., 2. og 3. mgr. 5. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:

Fyrir móttöku á malbiksbroti á Malbikunarstöð Akureyrar, skal greiða 7,19 kr./kg vegna kostn­aðar við endurvinnslu og geymslu.

Fyrir losun úrgangs vegna götusópunar (olíuskilja) skal greiða 7,19 kr./kg.

Fyrir móttöku á múr- og glerbroti, sem er umfram eðlilega heimilislosun, að Sjafnarnesi 2-4, Akureyri, skal greiða 8,50 kr./kg vegna kostnaðar við endurvinnslu og geymslu.

 

4. gr.

Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskránni er sett í samræmi við samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Akureyrarkaupstað nr. 670/2011, 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Auglýsingin tekur þegar gildi.

Gjaldskrárbreytingin var samþykkt í bæjarstjórn Akureyrarbæjar 5. desember 2023.

 

F.h. Akureyrarbæjar, 12. desember 2023,

 

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður/persónuverndarfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023