Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1173/2016

Nr. 1173/2016 21. desember 2016

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Akraneskaupstað.

1. gr.

Af hundum á Akranesi skal bæjarsjóður innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald á Akranesi, nr. 782/2010, sbr. 11. gr. hennar.

2. gr.

Við umsókn um skráningu hunds skal innheimta gjald sem hér segir:

a) Skráning kr. 15.090
b) Skráning eftir útrunninn frest, sbr. 1. mgr. 3. gr. samþykktar um hundahald nr. 782/2010. kr. 18.815

3. gr.

Af skráðum hundum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:

a) Fyrir hvern hund kr. 18.815
b) Fyrir hvern hund þegar eigandi hefur lokið námskeiði, sbr. 7. gr. þessarar gjaldskrár kr. 13.175

4. gr.

Greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu er innifalin í gjaldi samkvæmt 2. gr. a og 3. gr. svo og árleg ormahreinsun.

5. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:

a) Fyrsta afhending hunds kr. 18.815
b) Önnur afhending hunds, ef hún er innan tveggja mánaða kr. 25.090
c) Þriðja afhending hunds, ef hún er innan tveggja mánaða kr. 31.360

Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

6. gr.

Gjalddagi skv. 3. gr. er 1. mars og eindagi er 1. apríl. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

Við afskráningu hunds ber að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir lifa af árinu.

7. gr.

Hafi leyfishafi lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi, viðurkenndu af skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar lækka gjöld skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar um 30%.

Eigendur blindra-, leitar- og björgunarhunda eiga rétt á niðurfellingu gjalda samkvæmt 2. og 3. gr., enda leggi þeir fram skilríki um að hundarnir séu notaðir í þeim tilgangi.

8. gr.

Ofangreind gjaldskrá bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, sbr. samþykkt um hunda­hald á Akranesi nr. 782/2010, til að öðlast gildi þegar við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir hundahald í Akraneskaupstað nr. 1295/2015.

Með gjaldskrá þessari hafa gjöld verið hækkuð um 3,2% í samræmi við almennar gjaldskrár­hækkanir bæjarfélagsins fyrir árið 2017, samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Akraness frá 13. desember 2016.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi.

Akranesi, 21. desember 2016.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2016