1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 26. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1162 frá 1. júlí 2019 um breytingu á viðauka I og II við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar fyrirmyndir að heilbrigðisvottorðum BOV-X, OVI-X, OVI-Y og RUM fyrir dýr og dýraafurðir og skrárnar yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði og hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur til Sambandsins á tilteknum hóf- og klaufdýrum og nýju kjöti.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1162 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. september 2019.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|