Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 969/2020

Nr. 969/2020 17. september 2020

GJALDSKRÁ
fyrir byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar.

Fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir: 

1. gr.

Úttektir samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.

Áfangaúttekt 11.200 kr.
Stöðuúttekt 19.600 kr.
Lokaúttekt:  
a) Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breyt­ingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, kvistir, bílskúr, klæðingar húss o.þ.h. 22.400 kr.
b) Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis-, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss eða breytingar á fyrirkomulagi 39.200 kr.
c) Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breyt­ingar á fyrirkomulagi 56.000 kr.
Úrtaksskoðun vegna áfangaúttekta 11.200 kr.
Úttekt vegna byggingarstjóraskipta 22.400 kr.
Íbúðarskoðun 22.400 kr.

 

2. gr.

Útgáfa vottorða.

Fokheldisvottorð 28.100 kr.
Vottorð um stöðuúttekt 19.900 kr.
Lokaúttektarvottorð 19.900 kr.
Stöðuleyfi 18.000 kr.

 

3. gr.

Byggingarleyfisgjöld.

Lágmarksgjald við móttöku umsóknar 11.200 kr.
Hver aðaluppdráttur með umsókn:  
a) Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breyt­ingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, svalir, kvistir, klæðingar húss o.þ.h. 2.800 kr.
b) Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis-, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss ásamt skráningartöflu eða breyt­ingar á fyrirkomulagi 5.600 kr.
c) Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breyt­ingar á innra skipulagi atvinnuhúsa eða stærri framkvæmdir sem krefjast einnig skoðunar skipulagsfulltrúa enda falli framkvæmd ekki undir a- eða b-lið 11.200 kr.
Endurumsókn útrunnins byggingarleyfis 11.200 kr.
Aukagjald fyrir hverja þriðju umfjöllun 11.200 kr.

 

4. gr.

Skoðunargjöld vegna yfirferðar séruppdrátta.

Einbýlis-, par- og raðhús og fjölbýlishús allt að 2.000 m³ 84.000 kr.
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús allt að 2.000 m³ 117.600 kr.
Af hverjum 1.000 m³ byggingar umfram 2.000 m³:  
a) Einföld bygging, s.s. skemmur, skýli, lager, íþróttahús, gripahús o.þ.h. 16.800 kr.
b) Hefðbundin bygging, s.s. verslun og skrifstofur, fjölbýlishús, hótel o.þ.h. 28.000 kr.
c) Sérhæfð bygging s.s. heilsuverndarhús, menningar- eða rannsóknar­hús o.þ.h. 39.200 kr.
Aðrar minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa o.fl. 28.000 kr.
Umfangslitlar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis 44.800 kr.
Umfangsmiklar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis 89.600 kr.
Breytingar á innra skipulagi sérhúss, klæðning húss, svalaskýli, lóð o.fl. 16.800 kr.

 

5. gr.

Skoðunargjöld vegna yfirlesturs eignaskiptayfirlýsingar.

Eignaskiptayfirlýsing:  
a) 2-5 eignir 33.600 kr.
b) 5-15 eignir 44.800 kr.
c) 15-50 eignir 56.000 kr.
d) 50 eignir og fleiri 67.200 kr.
Aukagjald fyrir hvern þriðja yfirlestur 11.200 kr.

 

6. gr.

Skoðunargjöld vegna yfirferðar raflagnauppdrátta.

Íbúðarhúsnæði:  
  Einbýlis-, par- og raðhús 1 x 63 A 15.100 kr.
Fjölbýlishús með allt að 10 íbúðum:  
  Heimtaug 3 x 63 A, grunngjald 15.100 kr.
  Á hverja íbúð 780 kr.
Stærri fjölbýlishús:  
  Heimtaug 3 x 100-200 A, grunngjald 15.100 kr.
  Á hverja íbúð 1.900 kr.
Atvinnuhúsnæði:  
  Heimtaug 3 x 63 A 22.400 kr.
  Heimtaug 3 x 100-200 A 60.100 kr.
  Heimtaug 3 x 315 A og stærri 100.100 kr.

 

7. gr.

Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm og/eða umfangsmikil getur byggingarfulltrúi við með­ferð byggingarleyfisumsóknar ákveðið að skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir á kostnað eiganda vegna framkvæmdar í heild eða að hluta, sbr. ákvæði í gr. 3.3.1 og 3.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

 

8. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 með síðari breyt­ingum var staðfest í borgarráði Reykjavíkur 17. september 2020 og tekur gildi við birtingu. Jafn­framt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1233/2018. 

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 17. september 2020.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 7. október 2020