1.Almennt. Verðskrá þessi gildir fyrir veitusvæði Hitaveitu Flúða. Skattur á smásöluverð á heitu vatni samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta og virðisaukaskattur samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt bætast við gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma. 2. Varmaorka. 2.1 Fast gjald er háð afköstum rennslismælis en óháð töxtum að öðru leyti. Fast gjald á mæli | | Kr./dag | Mælastærð DN 15 | | 40,45 | Mælastærð DN 20 | | 49,72 | Mælastærð DN 25 | | 65,00 | Mælastærð DN 32 | | 82,04 | Mælastærð DN 40 | | 97,53 | Mælastærð DN 50 | | 163,35 |
Fasta gjaldinu er dreift niður á tímabil reikninga. 2.2 Rúmmetragjald. Varmaorka er afhent í formi heits vatns sem selt er samkvæmt rúmmetramælingu. Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða lækkun á hita vatnsins. H 1. Almenn heitavatnsnotkun. Taxtinn gildir fyrir upphitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu. | Sala um mæli | kr./m³ | | Rúmmetragjald skv. mælingu | 73,08 |
H 2. Taxtinn gildir fyrir iðnaðarfyrirtæki og landbúnað. | Atvinnufyrirtæki til framleiðslu | 58,12 |
H 3. Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir. H 4. Heimæðagjöld. Heimæðagjöld skiptast eftir málstærð heimtaugar. Heimæðagjöld - almenn | Kr. | Málstærð DN 20 mm | 219.674 | Málstærð DN 25 mm | 270.539 | Málstærð DN 32 mm | 406.274 | Málstærð DN 40 mm | 811.107 | Málstærð DN 50 mm | 1.346.905 |
Heimæðagjöld fyrir stærri inntök en 50 mm skal reikna sérstaklega. Gjald fyrir hvern lengdarmetra í heimæð, umfram 25 m er 1% af heimæðagjaldi. Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega. Heimæðagjöld - sumarhús | Kr. | | 20 mm | 531.402 | | 25 mm | 950.851 | |
Heimæðagjöld fyrir lengri heimæðar en 25 m skal reikna sérstaklega. Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega. 3. Önnur gjöld og ákvæði. | Gjald fyrir aukaálestur hjá notanda | 1.991 kr. | | Lokunargjald | 3.871 kr. |
Við stækkun atvinnuhúsnæðis skal semja sérstaklega um gjald vegna stækkunar á heimtaugum og aukningu á vatnsnotkun. Þeir sem taka vatn gegnum gróðurhús til upphitunar á pökkunar- og geymsluhúsnæði, skulu greiða fast gjald sem hér segir: | Fyrir hvern m³ húsnæðis á mánuði | 27,04 kr. |
Gjaldskrá þessi sem samþykkt er í veitustjórn þann 26. október 2012 og síðan af hreppsnefnd Hrunamannahrepps 1. nóvember 2012 er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1205 frá 15. desember 2011. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. nóvember 2012. F. h. r. Kristján Skarphéðinsson. Erla Sigríður Gestsdóttir. |