Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 569/2018

Nr. 569/2018 28. maí 2018

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 818/2016, um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

5.  Gjald fyrir leiðréttingu á kröfum einkaleyfis og endurútgáfu 27.600

2. gr.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður er verður 2. tölul. og breytist röð annarra liða samkvæmt því:

2.  Gjald fyrir framlengingu á viðbótarvottorði 47.800

3. gr.

Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein er verður 7. gr. a, svohljóðandi:

Andmæli

     Tilkynning um andmæli gegn einkaleyfi 41.400

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. heimild í 2. málsl. 2. mgr. 65. gr. a. og 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, sem og 3. mgr. 2. gr. og 1. mgr. 4. gr. laga nr. 40/2018 frá 8. maí 2018 um breytingu á lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. júní 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. maí 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Brynhildur Pálmarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 31. maí 2018