1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 2. tölul., svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/950 frá 15. janúar 2024 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/1602 að því er varðar framkvæmdardagsetningu og tilvik þar sem þess er krafist að tollyfirvöld dragi magn sem gefið er upp í tollskýrslu frá leyfða heildarmagninu sem er tilkynnt í samræmda heilbrigðis- og innflutningsskjalinu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 401.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.
Hanna Katrín Friðriksson.
|