Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 825/2016

Nr. 825/2016 29. september 2016

AUGLÝSING
um mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 29. október 2016.

Landskjörstjórn gerir kunnugt: að með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, sbr. og 5.-6. tölul. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, skuli mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður fyrir alþingiskosningar 29. október 2016 vera eftirfarandi:

Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi, en frá Vesturlandsvegi á móts við Sóltorg (ISN93 hnit: 364886, 405744) skal dregin bein lína í miðpunkt Sóltorgs og þaðan skulu mörkin dregin eftir miðlínu Kristnibrautar, Gvendargeisla og Biskupsgötu að Reynisvatnsvegi. Frá gatnamótum Biskupsgötu og Reynisvatns­vegar skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93 hnit: 369110, 405535).

Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir mörk milli Reykjavíkurkjördæma með rauðri línu.

Þá hefur landskjörstjórn ákveðið með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, að þeim sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík skv. b-lið 1. mgr. 23. gr. sömu laga skuli skipt milli Reykjavíkurkjördæma suður og norður þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður komi allir þeir sem eru fæddir 1.-15. dag mánaðar en í Reykjavíkurkjördæmi norður komi allir þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar eða síðar. Sama regla gildir um þá sem skráðir eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.

Reykjavík, 29. september 2016.

Landskjörstjórn,

Kristín Edwald formaður.

  Þórir Haraldsson. Ástráður Haraldsson.
  Sigrún Benediktsdóttir. Gunnar Sturluson.

Þórhallur Vilhjálmsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 30. september 2016