Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingar á deiliskipulagi sem hér segir:
Laugabólsland í Mosfellsdal. Vegna nýs deiliskipulags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal breytist afmörkun deiliskipulags Laugabólslands í Mosfellsdal. Afmörkunin við Þingvallaveg færist til suðurs og nær að veghelgunarmörkum Þingvallavegar í stað þess að liggja að Þingvallavegi sjálfum. Einnig eru teknar inn á uppdráttinn þær breytingar sem gerðar voru 13. mars 2013, 15. nóvember 2013 og 12. mars 2015 en aðrar breytingar voru þegar komnar inn á heildaruppdráttinn.
Kirkjumór. Vegna nýs deiliskipulags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal breytist afmörkun deiliskipulags Kirkjumós. Afmörkunin við Þingvallaveg færist til suðurs og nær að veghelgunarmörkum Þingvallavegar í stað þess að liggja að Þingvallavegi sjálfum.
Lóð úr landi Lundar. Vegna nýs deiliskipulags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal breytist afmörkun deiliskipulags við Suðurá í landi Lundar. Afmörkunin við Þingvallaveg færist til suðurs og nær að veghelgunarmörkum Þingvallavegar í stað þess að liggja að Þingvallavegi sjálfum. Einnig er reiðleið meðfram Þingvallavegi tekin út.
Lundur, garðyrkjubýli. Vegna nýs deiliskipulags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal breytist afmörkun deiliskipulags Lundar, garðyrkjubýlis. Afmörkunin í suðri færist aðeins til norðurs að veghelgunarmörkum Þingvallavegar.
Spilda úr landi Hraðastaða 1. Vegna nýs deiliskipulags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal breytist afmörkun deiliskipulags spildu úr landi Hraðastaða 1. Afmörkun deiliskipulagsins er breytt til norðurs og austurs og er að mestu leyti miðuð við veghelgunarlínu Þingvallavegar en í norðaustur horninu við gatnamót Þingvallavegar og Helgadalsvegar er í deiliskipulagi Þingvallavegar gert ráð fyrir nýju hringtorgi og undirgöngum og nær breytingin út fyrir veghelgunarlínuna vegna stíga og undirganga.
Helgadalsvegur 3, 5 og 7. Vegna nýs deiliskipulags fyrir Þingvallaveg í Mosfellsdal breytist afmörkun deiliskipulags Helgadalsvegar 3, 5 og 7. Afmörkun deiliskipulagsins til norðurs er breytt og fylgir suðurmörkum deiliskipulags Þingvallavegar.
Ofangreindar breytingar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 26. mars 2019,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|