1. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2020“ í 1. og 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2021.
2. gr.
Fyrirsögn 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi: Leiðrétting endurgreiðslna vegna mannvirkja.
3. gr.
Í stað „6. mgr.“ í 9. gr. reglugerðarinnar kemur: 7. mgr.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða nr. XXXIII og 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða nr. XXXIV við lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 49. gr. sömu laga, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2020.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
|