Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1492/2023

Nr. 1492/2023 6. desember 2023

GJALDSKRÁ
Vatnsveitu Mosfellsbæjar.

1. gr.

Vatnsgjald.

Af öllum fasteignum í Mosfellsbæ sem tengdar eru Vatnsveitu Mosfellsbæjar, skal greiða vatnsgjald árlega til Mosfellsbæjar, nema sérstaklega sé um annað samið.

Almennt vatnsgjald skal vera 0,065% af fasteignamati mannvirkja og lóða. Gjalddagar almenns vatnsgjalds eru þeir sömu og bæjarstjórn ákveður hverju sinni vegna álagðra fasteignagjalda í sveitarfélaginu.

 

2. gr.

Heimæðagjöld.

Verð í töflu hér að neðan miðast við að umsækjandi hafi lagt ídráttarrör á frostfríu dýpi frá tengistað vatnsveitu við lóðarmörk að inntaksstað í húsi sem Veitur í Mosfellsbæ hafa samþykkt. Óski umsækjandi eftir því að Vatnsveita Mosfellsbæjar sjái um jarðvinnu vegna heimlagna, bætist sá kostnaður við tengigjald vatnsveitunnar.

Gjald vegna heimæða skal vera sem hér segir.

Stærð heimæðar Kr. án vsk.
32 mm 237.770
40 mm 316.709
50 mm 455.734
63 mm 871.853
75 mm 1.247.342  
90 mm 1.549.952  
110 mm   1.725.992  
140 mm   1.935.742  
180 mm   2.323.975  

 

Stærð heimæðar er ákvörðuð af Vatnsveitu Mosfellsbæjar í samræmi við ósk kaupenda um vatnsmagn í umsókn. Þar sem lengd heimæðar er styttri en 20 metrar gildir ofangreind verðskrá. Fyrir hvern metra umfram 20 metra er heimilt að innheimta 1% lengdargjald af heimæðagjöldum viðkomandi málstærðar.

Ein tengigrind er innifalin í hverju tengigjaldi, fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af tengigjaldi viðkomandi málstærðar. Heimæðar stærri en 110 mm (4“) eru gjaldfærðar til samræmis við raunkostnað. Við mat á umsóknum er tekið mið af flutningsgetu aðliggjandi götu- eða stofnæðar.

Óski húseigandi eftir færslu heimæða að nýjum tengipunkti greiðir hann heimæðagjöld að nýju til samræmis við málstærð heimæðar.

Skýringar:

Almennt verð heimæða gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðið gildir ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimæðina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breyt­ingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitafélagsins t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna.

Álag vegna vatnsúðaheimæða er kr. 4.614.511 fyrir hverja heimæðarlögn.

Gjald vegna tengingar vinnuvatns er kr. 130.029án vsk.

Skýringar:

Vinnuvatn er aðgangur að vatni til byggingaframkvæmda og/eða skammtímanotkunar og upp­færist skv. byggingarvísitölu. Gjaldskrárverð gildir þegar tengt er við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk. Vinnuvatnstenging er aflögð um leið og heimæð er tengd inn í hús samkvæmt umsókn, en þá er ekki greitt sérstaklega fyrir aftengingu. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu en 50 mm er tenging gjaldfærð til samræmis við raunkostnað.

 

3. gr.

Mælagjöld.

Gjald vegna rennslismæla skal vera sem hér segir/ verð án vsk.

Stærð mælis Verð kr./dag án vsk.
15 mm   43,19
20 mm   47,47
25 mm   61,32
32 mm   67,75
40 mm   86,06
50 mm 101,06
80 mm 272,23
100 mm   277,82

 

4. gr.

Graftrargjöld.

Gjald er lagt á vegna ídráttarröra, fleygunar og sprenginga.

Vanti ídráttarrör eða ídráttarrör reynist ónothæf, greiðist kr. 11.375 án vsk. pr. lengdarmetra í heimlagnaskurði.

Reynist nauðsynlegt að fleyga eða sprengja klöpp eða ef frost er í jörðu bætist eftirfarandi kostnaður við skurðgröft, sbr. 1. mgr., sem innheimtist eftir á.

Klaki/klöpp dýpt cm kr./lengdarmetra/án vsk.
klaki/klöpp < 30 4.283
klaki/klöpp > 30 8.648

Vatnsveitan gefur upp innmælingu og/eða staðsetur heimæðarenda við lóðarmörk.

 

5. gr.

Notkunargjald.

Notkunargjald er kr. 55,07 pr. m³ án vsk.

Skýringar:

Þar sem vatn frá vatnsveitu er notað til atvinnustarfsemi eða annars en venjulegra heimilisþarfa er auk vatnsgjalds innheimt notkunargjald skv. 7. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004. Heimilt er að innheimta notkunargjald samkvæmt áætlun ef ekki er unnt að koma við mælingu.

 

6. gr.

Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Vatnsgjald og heimæðargjald greiðist af hús- og íbúðareiganda og lóðarréttarhafa og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Gjöldin eru tryggð með lögveðsrétti í fasteigninni næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Notkunargjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum má taka fjárnámi.

 

7. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 840. fundi 6. desember 2023 er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1703/2022.

 

Mosfellsbæ, 6. desember 2023.

 

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023