Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1393/2023

Nr. 1393/2023 24. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (43.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 200/2023, frá 22. september 2023, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/971 frá 16. júní 2021 um breyt­ingu á I. viðauka við tilskipun ráðsins 66/401/EBE um markaðssetningu fóðurjurtafræja, I. viðauka við tilskipun ráðsins 66/402/EBE um markaðssetningu sáðkorns, I. viðauka við til­skipun ráðsins 2002/54/EB um markaðssetningu sykurrófufræs, I. viðauka við tilskipun ráðsins 2002/55/EB um markaðssetningu grænmetisfræs og I. viðauka við tilskipun ráðsins 2002/57/EB um markaðssetningu olíu- og trefjaplöntufræs, að því er varðar notkun á lífefnafræðilegum og sameindafræðilegum aðferðum. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 79, 2. nóvember 2023, bls. 201.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáð­vöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 24. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 18. desember 2023