Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 720/2019

Nr. 720/2019 29. júlí 2019

REGLUGERÐ
um sameiginlegar kröfur fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar og eftirlit með þeim.

1. gr.

Markmið.

Í reglugerð þessari er mælt fyrir um sameiginlegar kröfur:

  1. Um veitingu þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar fyrir almenna flugumferð, einkum fyrir þá lögaðila eða einstaklinga sem veita þessa þjónustu og starfsemi.
  2. Fyrir lögbær yfirvöld, og hæfa aðila sem koma fram fyrir þeirra hönd, sem inna af hendi verkefni sem tengjast vottun, eftirliti og framfylgd að því er varðar veitendur þeirrar þjón­ustu og starfsemi sem um getur í 1. mgr.

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til þeirrar þjónustu sem talin er upp í 1. gr. og veitt er hér á landi, í lofthelgi Íslands og því loftrými sem Íslandi hefur verið falin þjónusta í samkvæmt skuldbindingum og samn­ingum á sviði þjóðaréttar.

3. gr.

Lögbært yfirvald að því er varðar vottun, eftirlit og framfylgd.

Lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari er Samgöngustofa. Stofnunin annast tilkynningar til Flugöryggisstofnunar Evrópu og Eftirlitsstofnunar EFTA á grundvelli reglugerðarinnar.

4. gr.

Aðlögun ákvæða reglugerðarinnar vegna landfræðilegrar legu Íslands,
sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2018.

Þar sem í reglugerð (ESB) 2017/373 og viðurkenndum aðferðum hennar til að uppfylla kröfur sem og leiðbeiningarefni er vísað til ákvæða Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem gilda um Evrópusvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO EUR) ber að skilja það svo að ákvæðin taki ekki til Íslands, þar sem Ísland tilheyrir Norður-Atlantshafssvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO NAT). Ákvæði sem gilda um Norður-Atlantshafssvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar teljast vera viðurkenndar aðferðir til að uppfylla kröfur fyrir Ísland.

Þar sem í reglugerð (ESB) 2017/373 er vísað til Evrópureglna sem takmarkast að gildissviði við Evrópusvæði og Afríku- og Indlandshafssvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, og Ísland hefur ekki tekið ákvörðun um að beita, ber að skilja það svo að reglurnar taki ekki til Íslands, heldur skulu gilda viðeigandi reglur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og íslenskar reglur eins og við á.

5. gr.

Yfirlýsing frá veitendum flugupplýsingaþjónustu.

Veitendum flugupplýsingaþjónustu er heimilt að gefa út yfirlýsingu um hæfni sína og getu til að rækja þær skyldur sem tengjast þjónustunni, sbr. 7. gr. reglugerðar (ESB) 2017/373.

6. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/373 frá 1. mars 2017 um sameiginlegar kröfur fyrir veitendur þjónustu á sviði rekstrar­stjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og á sviði starfsemi neta fyrir rekstrarstjórnun flug­umferðar og eftirlit með þeim, um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 482/2008, framkvæmdar­reglu­gerðum (ESB) nr. 1034/2011, (ESB) nr. 1035/2011 og (ESB) 2016/1377 og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 677/2011, með þeim breytingum, viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samn­ingsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samanber ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 196/2018 frá 21. september 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 27. september 2018 bls. 104-229.

7. gr.

Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum.

8. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Ákvæði reglugerðarinnar koma til fram­kvæmda eins og kveðið er á um í reglugerðinni sjálfri. Þann 2. janúar 2020 falla úr gildi reglugerðir nr. 1128/2014, um öryggiseftirlit með rekstrarstjórnun flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu, nr. 1129/2014, um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu og rekstrarstjórnun flugumferðar, og nr. 771/2010, um veitingu veðurþjónustu fyrir flugleiðsögu.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. júlí 2019.

F. h. r.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


B deild - Útgáfud.: 12. ágúst 2019