Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 990/2016

Nr. 990/2016 7. nóvember 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr.

Innleiðing.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2338 frá 11. desember 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur fyrir flugrita, staðsetningarbúnað undir vatni og kerfi til að rekja ferðir flugvéla, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 95 frá 29. apríl 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 2023.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. e, 28. gr. f og 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 7. nóvember 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2016