Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 741/2019

Nr. 741/2019 26. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um veiðar á sæbjúgum.

1. gr.

Almennt um veiðar á sæbjúgum.

Allar veiðar á sæbjúgum í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar. Fiskistofu er þó heimilt að veita leyfi til veiða skv. 3. gr. á þeim svæðum sem skilgreind eru í 2. gr. 

Leyfi til sæbjúgnaveiða skulu gefin út fyrir hvert fiskveiðiár. Ráðherra er heimilt að fela Fiski­stofu að fella úr gildi öll leyfi til sæbjúgnaveiða sé talin ástæða til að takmarka veiðarnar eða endur­skipuleggja stjórnun þeirra.

2. gr.

Veiðar á grundvelli veiðileyfis.

Eingöngu skipum sem fengið hafa leyfi til veiða á sæbjúgum er heimilt að veiða á eftirfarandi svæðum (fylgiskjöl 1 og 2): 

A. Vestfirðir, Norður-Aðalvíkursvæði:

    1. 66°00,00 N – 23°00,00 V
    2. 66°30,00 N – 24°00,00 V
    3. 66°30,00 N – 23°00,00 V
    4. 66°00,00 N – 23°00,00 V

B. Vestfirðir, miðsvæði:

    1. 66°00,00 N – 23°00,00 V
    2. 66°00,00 N – 25°00,00 V
    3. 66°30,00 N – 25°00,00 V
    4. 66°30,00 N – 24°00,00 V
    5. 66°00,00 N – 23°00,00 V

     Lokun innan Önundarfjarðar:

    1. 66°04,35 N – 23°33,96 V
    2. 66°02,53 N – 23°35,47 V

C. Vestfirðir, suðursvæði:

    1. 65°30,00 N – 23°00,00 V
    2. 65°30,00 N – 25°00,00 V
    3. 66°00,00 N – 25°00,00 V
    4. 66°00,00 N – 23°00,00 V
    5. 65°30,00 N – 23°00,00 V

     Lokun innan Dýrafjarðar:

    1. 65°55,00 N – 23°35,86 V
    2. 65°53,76 N – 23°38,18 V

     Lokun innan Arnarfjarðar:

    1. 65°46,17 N – 23°37,81 V
    2. 65°42,76 N – 23°40,62 V

     Lokun innan Tálkna- og Patreksfjarðar:

    1. 65°40,72 N – 24°01,73 V
    2. 65°38,85 N – 24°04,81 V
    3. 65°36,46 N – 24°09,60 V

D. Utanverður Breiðafjörður:

    1. 64°50,00 N – 23°12,00 V
    2. 64°50,00 N – 25°00,00 V
    3. 65°30,00 N – 25°00,00 V
    4. 65°30,00 N – 23°38,45 V
    5. 65°26,85 N – 23°38,75 V
    6. 65°00,00 N – 23°12,00 V
    7. 64°50,00 N – 23°12,00 V

E. Faxaflói:

    1. 64°02,00 N – 22°18,00 V
    2. 64°02,00 N – 23°00,00 V
    3. 64°21,00 N – 23°00,00 V
    4. 64°21,00 N – 22°18,00 V
    5. 64°02,00 N – 22°18,00 V

F. Austurland, norðursvæði:

    1. 65°00,00 N – 13°00,00 V
    2. 65°00,00 N – 15°00,00 V
    3. 65°30,00 N – 15°00,00 V
    4. 65°30,00 N – 13°00,00 V
    5. 65°00,00 N – 13°00,00 V

     Lokun innan fjarða á Austurlandi, norðursvæði:

    1. 65°21,82 N – 13°42,57 V
    2. 65°16,25 N – 13°34,47 V
    3. 65°10,00 N – 13°30,80 V
    4. 65°04,70 N – 13°29,60 V
    5. 64°48,10 N – 13°50,30 V
    6. 64°44,61 N – 13°56,74 V
    7. 64°39,44 N – 14°15,21 V

G.  Austurland, miðsvæði:

    1. 64°40,00 N – 13°00,00 V
    2. 64°40,00 N – 15°00,00 V
    3. 65°00,00 N – 15°00,00 V
    4. 65°00,00 N – 13°00,00 V
    5. 64°40,00 N – 13°00,00 V

H. Austurland, suðursvæði:

    1. 64°20,00 N – 13°00,00 V
    2. 64°20,00 N – 15°00,00 V
    3. 64°40,00 N – 15°00,00 V
    4. 64°40,00 N – 13°00,00 V
    5. 64°20,00 N – 13°00,00 V 

Ekki er heimilt að veiða með fleiri en tveimur plógum samstundis á veiðisvæðum sem skil­greind eru í þessu ákvæði.

3. gr.

Úthlutun leyfa.

Fiskistofa skal úthluta leyfi til veiða á sæbjúgum að fenginni umsókn. Veiðileyfum skal úthluta til skipa sem stundað hafa veiðar á sæbjúgum á síðustu þremur fiskveiðiárum. Alls verða leyfin níu. Ef fleiri en níu aðilar hafa stundað veiðarnar, þá skulu þeir sem mestan afla hafa ganga fyrir öðrum við úthlutun. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum fyrir 15. ágúst ár hvert og skal umsóknarfrestur vera ein vika.

Ef færri en níu aðilar hafa stundað veiðarnar, sbr. 1. gr., þá skal hlutkesti ráða hverjir fá úthlutað þeim leyfum sem ekki verður úthlutað á grundvelli 1. mgr. Skilyrði fyrir útgáfu leyfis til sæbjúgna­veiða er að skip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni.

Þegar leyfum til veiða á sæbjúgum sem til ráðstöfunar eru hefur ekki verið úthlutað við upphaf fiskveiðiárs skal afstaða tekin til umsókna eftir því sem þær berast Fiskistofu. Berist tvær eða fleiri umsóknir sama dag skal byggja á veiðireynslu við úthlutun leyfa.

Krókaaflamarksbátum sem fá leyfi til að veiða á sæbjúgum samkvæmt reglugerð þessari er heimilt að veiða sæbjúgu með plóg.

4. gr.

Tilraunaveiðileyfi.

Ráðherra er heimilt að veita tímabundin leyfi til tilraunaveiða á sæbjúgum utan veiðisvæða sem skilgreind eru í 2. gr. í samræmi við 13. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Í umsókn um tilraunaveiðar skal umsækjandi tilgreina meðal annars heiti skips, veiðitímabil og á hvaða tilkynningarskylda reit hann hyggst veiða (fylgiskjal 3). Leyfi til tilraunaveiða eru veitt að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna. Sama skip getur einungis haft eitt virkt tilraunaveiðileyfi til að veiða sæbjúgu og skal gildistími þess ekki vera lengri en þrír mánuðir. Sé sótt um nýtt tilraunaveiðleyfi fellur hið fyrra úr gildi við útgáfu þess nýja.

Heimilt er að binda leyfi til tilraunaveiða tilteknum skilyrðum, svo sem um hámarksafla, eftirliti Hafrannsóknastofnunar eða Fiskistofu með veiðunum, gerð plógs, greiningu afla og skýrsluskil til Hafrannsóknastofnunar.

Ráðherra er heimilt að afturkalla tímabundið leyfi til tilraunaveiða sé ekki farið að skilyrðum leyfisins.

5. gr.

Lokanir svæða á hrygningartíma.

Á hrygningartíma sæbjúgna eru veiðar óheimilar, sem hér segir:

  1. Frá 1. maí til og með 30. júní á svæði milli lína réttvísandi vestur frá Reykjanesvita (63°48,00′ N og 22°41,90′ V) og norður frá Skagatá (66°07,20′ N og 20°05,90′ V).
  2. Frá 1. júní til og með 31. júlí á svæði milli lína réttvísandi norður frá Skagatá (66°07,20′ N og 20°05,90′ V) og réttvísandi austur frá Glettinganesi (65°30,50′ N og 13°36,30′ V).
  3. Frá 1. júní til og með 31. júlí á svæði milli lína réttvísandi austur frá Glettinganesi (65°30,50′ N og 13°36,30′ V) og réttvísandi vestur frá Reykjanesvita (63°48,00′ N og 22°41,90′ V).

6. gr.

Almennt.

Við veiðar á sæbjúgum skal plógstærð ekki fara yfir 2,5 m og lágmarksmöskvastærð netpoka skal vera 80 mm. Við mælingar á möskvum gilda ákvæði gildandi reglugerðar um möskva­mæla og framkvæmd möskvamælinga.

Ekki er heimilt að veiða á fleiri en einu veiðisvæði í hverri veiðiferð.

7. gr.

Vigtun.

Við vigtun og skráningu á sæbjúgum gilda ákvæði reglugerðar nr. 745/2016, um vigtun og skrán­ingu sjávarafla. Skipstjóri skal gefa upp veiðisvæði, sbr. 2. og 3. gr., við vigtun afla á hafnar­vog.

8. gr.

Svipting veiðileyfis sem Fiskistofa gefur út.

Fiskistofu er heimilt að svipta skip leyfi til veiða í atvinnuskyni vegna brota á ákvæðum leyfis­bréfa og ákvæðum laga og reglugerða, sem lúta að stjórn veiða og nýtingu nytja­stofna, sbr. lög nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lög nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Fiskistofu er jafnframt heimilt að svipta skip leyfi til sæbjúgnaveiða fyrir brot á ákvæðum leyfisbréfa og ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og reglugerð þessari.

9. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, IV. kafla laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er gefin út með stoð í lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 795/2013 um veiðar á sæbjúgum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Umsóknir um leyfi til veiða á sæbjúgum fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 sem þegar hafa borist Fiskistofu halda gildi sínu.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. ágúst 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 26. ágúst 2019