Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 707/2023

Nr. 707/2023 3. júlí 2023

REGLUGERÐ
um lista yfir störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar í skilningi laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér landi og falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lista yfir störf í við­auka.

 

2. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að afmarka þau störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi og falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga í samræmi við stefnu stjórnvalda og þarfir atvinnulífsins hverju sinni.

 

3. gr.

Listi yfir störf.

Með störfum sem krefjast sérhæfðrar þekkingar sem tímabundinn skortur er á hér á landi er ekki átt við önnur störf en þau sem eru sérstaklega tilgreind í viðauka og falla jafnframt undir starfa­flokkun ÍSTARF21.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 8. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, öðlast þegar gildi.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 3. júlí 2023.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.

 VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 4. júlí 2023