1. gr.
Af eigendum hunda í Búðardal skal sveitarsjóður innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003.
2. gr.
Við umsókn um skráningu hunda skal innheimta gjald sem hér segir:
|
Skráningargjald |
kr. 10.467 |
Í skráningargjaldi er innifalin örmerking og skráning, merking, ábyrgðartrygging og hundahreinsun.
3. gr.
Af skráðum hundum skal innheimta árlegt gjald sem hér segir:
|
Fyrir hvert dýr |
kr. 8.197 |
Í árlegu gjaldi er innifalin ábyrgðartrygging og hundahreinsun.
Ekki skal innheimta árgjald sama ár og dýr er skráð.
4. gr.
Við afhendingu handsamaðs dýrs skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:
|
Fyrsta afhending |
kr. 15.132 |
|
Önnur afhending (innan tveggja mánaða) |
kr. 22.698 |
|
Þriðja afhending (innan tveggja mánaða) |
kr. 34.045 |
Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi dýrs. Óskráð dýr má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.
5. gr.
Gjalddagi er 1. mars og eindagi 1. apríl. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Hafi leyfi ekki verið greitt á eindaga fellur það úr gildi.
Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Við afskráningu dýrs ber að endur-greiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.
6. gr.
Eigendur blindra- og björgunarhunda eiga rétt á niðurfellingu leyfisgjalds enda leggi þeir fram skilríki um að hundarnir séu notaðir í þeim tilgangi. Þeir eru hins vegar skráningarskyldir og þarf að greiða af þeim skráningargjald.
7. gr.
Ofangreind gjaldskrá Dalabyggðar sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 7. desember 2023, staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. samþykkt um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003 til að öðlast gildi þegar við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1494/2020 fyrir hundahald í Dalabyggð.
Búðardal, 3. janúar 2024.
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.
|