Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1209/2021

Nr. 1209/2021 13. október 2021

REGLUGERÐ
um .eu höfuðlénið.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að taka í notkun landskóðann .eu og tryggja að íslenskum aðilum sé kleift að fá úthlutað lénum með endingunni .eu.

 

2. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar og Evrópuþingsins og ráðsins (EB), samkvæmt ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar um breyt­ingu á XI. viðauka EES-samningsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517 frá 19. mars 2019 um að taka í notkun höfuðlénið .eu og hlutverk þess og um breytingu og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 733/2002 sem og niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 874/2004, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50, dagsett 23. júlí 2020, á bls. 180, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2020 frá 12. júní 2020.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1083 frá 14. maí 2020 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517 með því að ákvarða hæfis- og val­viðmiðanir og aðferð við tilnefningu skráningarstofu höfuðléna .eu, sem birtist í EES-við­bæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, dagsett 15. apríl 2021, á bls. 145, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2021 frá 19. mars 2021.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/857 frá 17. júní 2020 um megin­reglurnar sem eiga að vera hluti af samningnum milli framkvæmdastjórnar Evrópu­sambands­ins og skráningarstofu höfuðlénsins .eu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambands­ins nr. 28, dagsett 15. apríl 2021, á bls. 150, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 119/2021 frá 19. mars 2021.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 17. gr. laga um íslensk landshöfuðlén nr. 54/2021, og öðlast þegar gildi.

Reglugerð nr. 50/2014, með síðari breytingum, fellur úr gildi 13. október 2022.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. október 2021.

 

F. h. r.

Birgir Rafn Þráinsson.

Vera Sveinbjörnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. október 2021