Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1298/2019

Nr. 1298/2019 12. desember 2019

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi.

1. gr.

Af hundum í Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað og Kópavogsbæ skal Heilbrigðiseftirlit Hafnar­fjarðar- og Kópavogssvæðis innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd heilbrigðissamþykktar um hundahald, sbr. 15. gr. samþykktar nr. 154/2000 um hundahald í ofangreindum sveitarfélögum.

2. gr.

Við umsókn um skráningu hunds skal innheimta gjald sem hér segir:

  Skráningargjald kr. 10.000
  Skráningargjald eftir útrunnin frest kr. 18.000

Auk þess skal innheimta eftirlitsgjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu:

  Bráðabirgðaskráning kr.   7.700

Auk þess skal innheimta eftirlitsgjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem bráðabirgðaskráning gildir.

3. gr.

Af skráðum hundum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:

  Einn hundur kr. 14.000

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald sem hér segir:

  Tvö tímagjöld heilbrigðiseftirlits kr. 35.000

Afhending skráðs hunds ef eftirlitsgjald og vottorð eru í skilum við handsömun:

  Eitt tímagjald kr. 17.500

Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.

5. gr.

Gjalddagi samkvæmt 3. gr. er 1. febrúar og eindagi 1. mars. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar. Um innheimtu gjalda fer sam­kvæmt ákvæðumlaga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breyt­ingum. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

Við afskráningu hunds ber að endurgreiða árlega eftirlitsgjaldið í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu þegar gengið hefur verið frá afskráningu.

6. gr.

Hafi leyfishafi lokið námskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, er heilbrigðisnefnd heimilt, að fenginni umsókn, að lækka gjöld skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar um allt að helming, frá þeim tíma sem fullnægjandi gögn voru lögð fram, enda mæli ekki önnur atriði á móti því, sbr. samþykkt um hundahald nr. 154/2000. Skilyrt er að gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari séu ekki í vanskilum.

7. gr.

Heilbrigðisnefnd er heimilt að fella niður eða lækka gjöld skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar af leiðsöguhundum blindra, leitar- eða björgunarhundum. Ber að sækja um slíka lækkun eða niður­fellingu gjalda sérstaklega til heilbrigðisnefndar.

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarstjórn Garðabæjar 5. desember 2019, bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar 27. nóvember 2019 og bæjarstjórn Kópavogsbæjar 22. október 2019, stað­festist hér með vísun til ákvæða 12. gr. og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1284/2018 um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi.

Garðabæ, 12. desember 2019.

F.h. heilbrigðisnefndar,

Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri.


B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2020