Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1614/2021

Nr. 1614/2021 21. desember 2021

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Dalvíkur.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir frá og með 1. janúar 2022 fyrir orkuveitusvæði Hitaveitu Dalvíkur. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts og orkuskatts.

 

2. gr.

Viðmiðunarhitastig gjaldskrár er 25°C.

Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:

a) Orkugjald skv. orkumæli kr. 2,80 pr. kWst.
b) Orkugjald skv. orkumæli sundlaugar kr. 1,12 pr. kWst.
c) Lokunargjald kr. 7.985

Þeim viðskiptavinum Hitaveitu Dalvíkur sem nota meira en 1.006.000 kWst. á ári er veittur 30% afsláttur af gjaldskrá.

 

3. gr.

Viðskiptavinir skulu greiða fast gjald í formi mælaleigu, gjaldið er daggjald og er breytilegt eftir stærð mæla. Mælaleigan er sem hér segir:

Stærð mælis

Mælagjald í kr. á dag

  15 mm  38,22
  20 mm  51,21
  25 mm  76,27
  40 mm  95,72
  50 mm 119,82 
  65 mm 134,95 
  80 mm 152,31 
100 mm 171,89 

 

4. gr.

Heimæðagjald Hitaveitu Dalvíkur skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

Fyrir hús allt að 400 m³ að utanmáli og heimæð allt að 50 m kr. 376.893
og á hvern m³ þar yfir kr.       474
og á hvern m fram yfir 50 m kr.    8.248

Rúmmál húsa miðast við stærðir samkvæmt reglum um skráningu fasteigna hjá Þjóðskrá Íslands. Heimæðagjöld skal reikna af öllu húsrými á viðkomandi lóð, hvort sem það verður tengt hita­veitunni eða ekki.

Heimæðagjald hitaveitu fyrir útihús tengd landbúnaði skal vera með eftirfarandi hætti:

  1. Fyrir mjólkurhús/fjós skal greiða lágmarksgjald       kr.    376.893
  2. Fyrir hesthús að 700 m³ skal greiða lágmarksgjald. Aðilum er heimilt að sameinast um inntak.

Ef um er að ræða lagnir í dreifða byggð eða samkvæmt sérsamningi er vísað til 17. gr. reglu­gerðar fyrir Hitaveitu Dalvíkur. Gjald þetta skal þó aldrei vera lægra en nemur lágmarks heimæðagjaldi hitaveitunnar.

 

5. gr.

Heimæðagjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2021, 156,1 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.

 

6. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með 10 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni kr. 7.985.

 

7. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, er hér með staðfest sam­kvæmt orkulögum nr. 58/1967, til að taka gildi 1. janúar 2022. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1445/2020.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 21. desember 2021.

F. h. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra,

Stefán Guðmundsson.

Magnús Dige Baldursson.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2021