Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 162/2017

Nr. 162/2017 9. febrúar 2017

REGLUGERÐ
um þóknun fyrir vinnu og nám og dagpeninga til fanga.

1. gr.

Fyrir störf afplánunarfanga í fangelsum skulu þeir hljóta eftirfarandi þóknun:

  1. Fyrir öll störf fanga skal greiða 415 krónur á klukkustund.
  2. Fyrir skólasókn skal greiða 415 krónur á klukkustund.
  3. Hámark er á tímafjölda greiddra klukkustunda á hvern fanga á viku fyrir skólasókn eða sem samsvarar að jafnaði 20 klst. m.v. 100% skólasókn og námsframvindu.
  4. Hámarkstímafjöldi fanga á viku fyrir ræstingar er að jafnaði 28 klst.
  5. Samanlagður tímafjöldi fyrir nám og öll önnur störf skal að jafnaði ekki fara umfram 40 klst. á viku á hvern fanga.

Heimilt er að víkja frá ákvæðum 3. tl. stundi fangi mikið nám þó þannig að greiðslur fyrir saman­lagða vinnu og nám sé að jafnaði ekki umfram 40 klst. á viku. Óski Fangelsismálastofnun eftir eða samþykki vinnuframlag fanga umfram hámark samkvæmt þessari grein er greitt fyrir það.

2. gr.

Þegar gæsluvarðhaldsfangar vinna í fangelsum skal þeim greidd þóknun fyrir störf sín með sama hætti og að ofan greinir.

3. gr.

Nú er ekki unnt að útvega fanga vinnu, eða hann getur samkvæmt læknisvottorði ekki sinnt vinnu­skyldu eða námi, skal hann fá greidda dagpeninga fyrir þá daga sem hann hefði ella unnið sam­kvæmt eftirfarandi gjaldskrá:

Fjárhæð dagpeninga fanga, sbr. 27. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga, skal vera 630 krónur á dag. Dagpeningar skulu einungis greiddir virka daga frá mánudegi til föstudags.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 98. gr. og 27. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um þóknun fyrir vinnu og nám og upphæð dagpeninga fanga nr. 1160/2016.

Innanríkisráðuneytinu, 9. febrúar 2017.

Sigríður Á. Andersen
dómsmálaráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. febrúar 2017