1. gr.
Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra, sem gerðir eru vegna nýbygginga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Dalvíkurbyggðar, skal byggingarfulltrúinn í Dalvíkurbyggð í umboði sveitarstjóra innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Byggingarleyfisgjöld.
Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling innan byggingarreits, lögboðið byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt.
Tegund byggingar |
Afgreiðslugjald, kr. |
Fermetragjald, kr. |
A |
Íbúðarhúsnæði, bílgeymslur og gistihús |
101.738 |
254 |
B |
Stofnanir, verslunar- og þjónustuhús |
101.738 |
129 |
C |
Frístundahús |
76.303 |
254 |
D |
Gripahús, iðnaðarhús og sérbyggðar bílgeymslur |
76.303 |
100 |
E |
Vélageymslur, gróðurhús og loðdýrahús |
76.303 |
65 |
F |
Aðstöðuhús, geymslur, gestahús og sambærilegt |
38.152 |
254 |
Vegna viðbyggingar við áður byggð hús skal greiða kr. 38.152 afgreiðslugjald og fermetragjald samkvæmt töflu um viðeigandi hús.
3. gr.
Fermetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttóflatarmáli sbr. ákvæði ÍST 50, án svala og C rýma. Fermetra skal námunda í heilan fermetra samkvæmt almennum reiknireglum.
4. gr.
Gjalddagi lágmarksgjalds er áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Gjalddagi fermetragjalds er áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, eða takmarkaðs byggingarleyfis, fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.
5. gr.
Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.
6. gr.
Fyrir þjónustu sem veitt er af hálfu byggingarfulltrúa í umdæmi Dalvíkurbyggðar, skal byggingarfulltrúinn í Dalvíkurbyggð í umboði sveitarstjóra innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
7. gr.
Afgreiðslu- og þjónustugjöld.
Fyrir ýmsa þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir greiðast eftirfarandi gjöld:
Nr. |
Tegund þjónustu |
Gjald kr. |
1. |
Afgreiðslugjald, fast gjald á aðra liði en um getur í 2. og 8. gr. Gjaldið greiðist fyrir hverja einstaka afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar |
2.484 |
2. |
Stöðuleyfi, árgjald sem greiðist einu sinni á ári |
|
|
a) Hjólhýsi o.þ.h. |
30.141 |
|
b) Gámar: |
|
|
allt að 20 fetum að stærð |
15.260 |
|
40 fet að stærð |
30.521 |
3. |
Lóðarúthlutunargjald, óendurkræft þó lóðinni sé skilað til sveitarfélagsins |
100.000 |
4. |
Yfirferð eignaskiptalýsingar |
Samkvæmt gjaldskrá Þjóðskrár hverju sinni |
5. |
Umsögn vegna vínveitinga- og rekstrarleyfa |
10.353 |
6. |
Fyrir húsaleiguúttekt |
10.353 |
7. |
Fyrir úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar |
10.353 |
8. |
Útprentun á A3 |
126 |
9. |
Útprentun á A4 |
64 |
10. |
Nýr lóðarleigusamningur |
51.771 |
11. |
Breytingar á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs |
20.346 |
12. |
Endurskoðun aðaluppdráttar |
18.082 |
13. |
Minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa |
19.081 |
14. |
Framkvæmdaleyfi |
34.186 |
15. |
Endurnýjun leyfis án breytinga |
13.564 |
16. |
Meiriháttar breytingar á samþykktu deiliskipulagi, aðkeypt vinna |
Skv. reikningi |
17. |
Veruleg eða óveruleg breyting á aðalskipulagi, aðkeypt vinna |
Skv. reikningi |
18. |
Þinglýsing lóðarleigusamninga |
Skv. reikningi |
8. gr.
Gjaldskráin uppreiknaðist til hækkunar um 2,7% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar að hausti 2020.
9. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2021. Jafnframt fellur fyrri gjaldskrá byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar nr. 1320/2019 úr gildi.
Samþykkt í umhverfisráði Dalvíkurbyggðar 2. október 2020 og í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 24. nóvember 2020.
Dalvík, 23. desember 2020.
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.
|