Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt nýtt deiliskipulag og aðrar deiliskipulagsbreytingar sem hér segir:
Heiðarhvammur í landi Miðdals – 521-F. Nýtt deiliskipulag sem felur í sér að landi Heiðarhvamms, L125323, er skipt upp í fjórar frístundahúsalóðir. Sameiginleg aðkoma er frá Hafravatnsvegi um núverandi veg. Eitt hús er innan svæðisins. Stærðir og ákvæði eru í samræmi við aðalskipulag.
Frístundasvæði við Selvatn – 528-F. Nýtt deiliskipulag sem felur í sér að löndum L202915, L202914, L125341 og L202916, við Selvatn er skipt upp í ellefu frístundahúsalóðir. Aðkoma húsa er um sameiginlegan veg sem fyrir er á svæðinu. Eitt hús er innan svæðisins. Stærðir og ákvæði eru í samræmi við aðalskipulag.
Gróðrarstöðin Dalsgarður í Mosfellsdal – 214-Íb/L. Nýtt deiliskipulag sem felur í sér heildrænt skipulag fyrir L123628, L123627 og L125133, starfsemi og íbúðarhús Dalsgarðs við Æsustaðaveg. Fimm nýir byggingarreitir fyrir ylrækt eru innan skipulagsins og tveir reitir vegna íbúðarlóða. Svæðið er um 2,4 ha og nýtingarhlutfall þess er 0,21.
Þverholt 25-27 – 116-M. Deiliskipulagsbreyting sem felur í sér að fallið er frá kvöð skipulagsins um að einungis sé heimilt að byggja leiguíbúðir á lóðunum sem skuli aðeins vera í eigu eins félags. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
Ofangreint hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 1. október 2020,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|