Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1242/2015

Nr. 1242/2015 18. desember 2015

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Fjarðabyggðar.

1. gr.

Hitaveita Fjarðabyggðar selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt verðskrá þessari og reglugerð hitaveitunnar fyrir heitt vatn nr. 908/2005. Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru gefin upp án skatts á smásöluverð á heitu vatni og virðisaukaskatts, nema annað sé tekið fram, og leggjast þessir skattar á þau samkvæmt gildandi reglum á hverjum tíma. Virðisaukaskattur á sölu á heitu vatni til hitunar húsa og laugarvatns er 11%.

2. gr.

Ekki er takmarkaður aðgangur húsveitu að heitu vatni umfram það sem heimæð og veitukerfi gera. Hitaveitu Fjarðabyggðar er heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstingsbreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu búnaðarins.

3. gr.

Seðilgjald kr. 217 leggst á útsenda prentaða reikninga en hægt er að komast hjá gjaldinu með því að nýta greiðslukortaþjónustu eða beingreiðslur í banka. Reikningar birtast í heimabönkum þeirra sem nýta sér slíka þjónustu.

4. gr.

Reikninga skal greiða á eindaga. Séu reikningar ekki greiddir á eindaga er send út tilkynning um vanskil. Reikningar eru því næst sendir til innheimtuaðila. Vextir leggjast við skuldina sé ekki greitt á eindaga.

5. gr.

Hitaveitugjöld eru krafin mánaðarlega. Áætlunarreikningur er sendur út ellefu mánuði ársins en hann byggir á fyrri notkun. Einu sinni á ári er sendur uppgjörsreikningur sem er byggður á álestri og er hann uppgjör á þeim áætlunarreikningum sem sendir hafa verið.

6. gr.

Húseigandi, eða sá sem skráður er fyrir mæli, er ábyrgur fyrir því að tilkynna flutning og er ábyrgur fyrir orkunotkun þar til tilkynning um annan notanda hefur verið móttekin hjá hitaveitunni.

7. gr.

Verð fyrir afnot á heitu vatni er eftirfarandi:

A. Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns:

     Grunnverð kr. 162

 

B. Mælagjald – fast gjald.

Mælir Grunnverð kr./dag Ársgrundvöllur kr.
15 og 20 mm     74,19   27.080
25 mm   249,85   91.194
32 mm   482,45 176.094
40 mm   982,12 358.475
50 mm 1.894,67 691.554

Um afnot af vatni hitaveitu til annarra nota en húshitunar gilda sérstök gjöld sem ákveðin eru hverju sinni en þó með hliðsjón af gjaldskrá hitaveitunnar.

C. Önnur gjöld:

Umbeðinn aflestur af mælum 1.579 kr. m. vsk.
Lokunargjald 2.141 kr. m. vsk.
Seðilgjald 217 kr. m. vsk.
Skiptigjald 2.636 kr. m. vsk.
Innheimtugjald m.vsk. er í höndum innheimtuaðila  

8. gr.

Bráðabirgðaheimlagnir.

Stofngjald:  
Lögn Grunnverð kr.
20 mm 23.368
25 mm 29.538
32 mm 30.523
Lengdargjald:  
20 mm kr./metra 3.282
25 mm kr./metra 4.198
32 mm kr./metra 4.198

Lengdargjald er greitt fyrir hvern metra í heimlögn sem lögð er til bráðabirgða. Ef bráðabirgðaheimlögn verður síðar notuð sem aðalheimlögn fyrir hús, greiðist ekkert lengdargjald vegna bráðabirgðatengingar. Bráðabirgðaheimlagnir skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.

9. gr.

Aðalheimæðar – heimtaugagjöld:

Stofngjald:  
Lögn Inntaksgjald kr.
20 mm 429.976
25 mm 558.966
32 mm 754.605
40 mm 1.056.446
50 mm 1.531.676
Tengigrind 55.143
Tengigjald 55.143

Tengigrind er ekki innfalin í heimæðargjaldi.

Ef heimlagnagjald stendur ekki undir kostnaði í frágengnu hverfi er heimlagnagjald fyrir nýja eða stækkaða heimlögn greitt samkvæmt kostnaðaráætlun.

Heimæð hitaveitu liggur frá götulögn eða tengibrunni og inn fyrir húsvegg húsveitu að inntaksloka.

Aukagjald fyrir hvern mæli umfram þann fyrsta skal vera 30.552 kr. m.vsk.

10. gr.

Lengdargjald í dreifbýli skal vera samkvæmt kostnaði en lengdargjald í þéttbýli er 8.669 kr. m. vsk. og er greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðamarka.

11. gr.

Önnur atriði til skýringa:

Stærð heimlagnar fer eftir hússtærð og starfsemi sem þar er áætluð. Húseigandi og hönnuður ákveða stærð heimlagna en hitaveita Fjarðabyggðar ákveður lágmarksstærð heimlagna fyrir íbúðarhús.

Eigandi íbúðarhúss/fyrirtækis þarf að sækja tímanlega um heimlögn á þar til gerðu eyðublaði, hvort sem um er að ræða nýja heimlögn, færslu, breytingu eða stækkun á eldri heimlögn. Teikningar skulu fylgja umsókn.

Heimlagnargjald skal greitt fyrir hverja heimlögn er tengir húsveitu við kerfi veitunnar. Heimlagnargjald skal greitt áður en vinna við lagningu hefst.

Þegar heimlögn er stækkuð eða þegar heimlögn er breytt samkvæmt beiðni viðskiptavinar, skal greiða fyrir breytinguna samkvæmt samkomulagi og skal tekið mið af raunkostnaði við breytinguna.

Heimilt er að veita afslátt af tengigjöldum ef tengikostnaður er sannanlega lægri en gjaldskrá miðar við.

Heimilt er að leggja álag á tengigjald ef tengikostnaður er sannanlega hærri en gjaldskrá miðar við.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarráði og bæjarstjórn Fjarðabyggðar, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2016 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 1204/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. desember 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2015