Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 405/2022

Nr. 405/2022 4. apríl 2022

AUGLÝSING
um staðfestingu innviðaráðuneytisins á sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar í eitt sveitarfélag.

Með vísan til 124. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, tilkynnir ráðuneytið að það hefur í dag staðfest sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar í eitt sveitarfélag.

Boða skal til sveitarstjórnarkosninga 14. maí næstkomandi og kjósa sjö fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn sameinaða sveitarfélagsins 29. maí 2022 og á sama tíma tekur sameiningin gildi.

Samþykkt um stjórn Stykkishólmsbæjar mun gilda fyrir hið nýja sveitarfélag þar til því hefur verið sett ný samþykkt. Heiti hins sameinaða sveitarfélags verður auglýst sérstaklega.

Íbúar sveitarfélaganna skulu vera þegnar sameinaða sveitarfélagsins. Hið sameinaða sveitarfélag skal taka yfir allt það land sem nú tilheyrir sveitarfélögunum tveimur. Eignir, skuldir, réttindi og skyldur sem tilheyra sveitarfélögunum skulu falla til sameinaða sveitarfélagsins. Skjöl og bókhalds­gögn beggja sveitarfélaga skulu afhent sameinaða sveitarfélaginu til varðveislu.

Sveitarstjórnir sveitarfélaganna kjósa sameiginlega þrjá fulltrúa í yfirkjörstjórn og þrjá til vara. Kjörstjórnir þær sem kosnar voru í upphafi yfirstandandi kjörtímabils, skv. 14. gr. laga nr. 5/1998, um kosningar til sveitarstjórnar, skulu vera undirkjörstjórnir í hvoru sveitarfélagi fyrir sig við sveitar­stjórnarkosningar.

 

Innviðaráðuneytinu, 4. apríl 2022.

 

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Guðni Geir Einarsson.


B deild - Útgáfud.: 5. apríl 2022