Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 644/2023

Nr. 644/2023 7. júní 2023

REGLUGERÐ
um innihald og framsetningu upplýsinga sem fyrirtæki eiga að birta samkvæmt tilskipun 2013/34/ESB varðandi umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi og tilgreinir aðferðafræðina við að fara að þessari birtingarskyldu.

1. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2178 frá 6. júlí 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/852 með því að tilgreina innihald og framsetningu upplýsinga sem fyrirtæki eiga að birta skv. 19. gr. a eða 29. gr. a í tilskipun 2013/34/ESB varðandi umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi og tilgreina aðferðafræðina við að fara að þessari birtingarskyldu. Reglugerðin var tekin upp í samn­inginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 218/2022 frá 8. júlí 2022, með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 45 frá 15. júní 2023, bls. 10.

 

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 25/2023, um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. júní 2023.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Benedikt Hallgrímsson.


B deild - Útgáfud.: 21. júní 2023