Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Deiliskipulag fyrir miðbæ Mosfellsbæjar, Bjarkarholt/Háholt. Breytingin felst í eftirfarandi:
Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir að koma fyrir bílastæðum á milli lóðanna. Þessi bílastæði eru felld út. Í stað fjögurra lóða sem fyrirhugaðar voru á svæðinu verða nú tvær lóðir. Lóðirnar sem standa við Bjarkarholt, ásamt lóð nr. 23 við Háholt, sameinast í eina lóð. Lóð nr. 17-21 verður áfram ein lóð. Lóðarmörk breytast og lóðir stækka jafnframt til suðurs. Á nýrri lóð við Bjarkarholt eykst nýtingarhlutfall og fjöldi íbúða miðað við núverandi áætlanir. Nýtt skipulag gerir ráð fyrir 105 íbúðum í stað 52 íbúða sem gert er ráð fyrir samkvæmt núgildandi deiliskipulagi. Á lóð nr. 17-21 við Háholt verður gert ráð fyrir íbúðum ásamt þeirri verslun og þjónustu sem fyrirhuguð er samkvæmt núgildandi áætlun. Í stað þriggja byggingarreita verður einn byggingarreitur á lóðinni með verslun og þjónustu á jarðhæð en íbúðum á 3-4 hæðum fyrir ofan.
Ofangreind breyting á deiliskipulagi hefur hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 9. nóvember 2017,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|