Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 931/2017

Nr. 931/2017 23. október 2017

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1905 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 15.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 192/2017, frá 22. september 2017, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samn­ings­ins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1905 frá 22. september 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í sam­ræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóð­legan reikningsskilastaðal, IFRS-staðal 15.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2016/1905 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 686.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðu­reikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2017.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 6. nóvember 2017