Samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Selfossveitna er öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Gjaldskrá Selfossveitna, nr. 210, 27. febrúar 2008, með síðari breytingum, breytist þannig: 1. hluti hljóðar svo: 1. HLUTI Sölutaxtar, stofngjöld og innheimta. I. Sölutaxtar. Verð er án virðisaukaskatts og sérstaks skatts af heitu vatni. Á tilgreindar upphæðir leggst virðisaukaskattur eins og hann er hverju sinni og kveðið er á um í viðeigandi lögum og reglugerðum. Greiða skal í ríkissjóð sérstakan skatt af heitu vatni. Heimilt er að miða innheimtu skatts af heitu vatni við áætlaða sölu. Fjárhæð skatts af heitu vatni skal vera 2,0% af smásöluverði. I.a Afnot af heitu vatni. Almennir taxtar | Einingar | Grunngjald | H.1 | Heitt vatn um rennslismæli | | | | Heimili og íbúðir | kr./m³ | 95,90 | | Fastagjald | kr./ár | 12.590,00 | H.2 | Heitt vatn um rennslismæli | | | | Stórnotendur >1″ | kr./m³ | 95,90 | | Fastagjald | kr./ár | 17.920,00 | Sértaxtar | | | H.5 | Heitt vatn um hemil | | | | Heitt vatn um hemil | kr./mínl/ár | 26.614,00 | | Fastagjald | kr./ár | 17.920,00 | H.6 | Heitt vatn um rennslismæli | | | | Almenningssundlaugar | | | | Sumar 1. maí - 30. september | kr./m³ | 48,60 | | Vetur 1. október - 30. apríl | kr./m³ | 58,30 | | Fastagjald | kr./ár | 32.345 |
II. Stofngjöld hitaveitu. II.a. Þéttbýlisstaðir, Eyrarbakki, Selfoss og Stokkseyri. | Grunngjald kr. | Íbúðarhúsnæði, einbýli | 153.096 | Einingarverð umfram 500 m³ húsnæðis | 132 |
II. b. Holtabyggð, Tjarnabyggð, byggð við Votmúlaveg og bæir austan við Stokkseyri. | Grunngjald kr. | Heimæð, DN 20 stál eða PEX-25 | 553.815 | Heimæð, DN 25 stál eða PEX-32 | 1.107.631 |
III. Innheimta og lokanir. | kr. | Innheimtugjald | 1.101 | Lokunargjald | 3.476 |
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. apríl 2014. | F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, | Kristján Skarphéðinsson. |
Hreinn Hrafnkelsson. |