Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1632/2022

Nr. 1632/2022 16. desember 2022

GJALDSKRÁ
skipulags- og byggingarmála í Múlaþingi.

1. gr.

Gatnagerðargjald.

Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í Múlaþingi skal greiða gatnagerðargjald sam­kvæmt gjaldskrá þessari, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatna­mannvirkja. Gjaldinu skal þannig m.a. varið til að undirbyggja götur, leggja bundið slitlag, gang­­stéttar, götulýsingu, umferðareyjar og þess háttar þar sem gert er ráð fyrir því í skipulagi.

Byggingarleyfisgjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatnagerðargjaldi. Stofngjöld veitna eru ekki innifalin í gatnagerðargjaldi.

 

2. gr.

Gjaldstofn gatnagerðargjalds og tímamark álagningar.

Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði.

Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er hámarksnýtingarhlutfall tiltekinnar lóðar. Gjaldstofn­inn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:

  1. Þegar sveitarfélagið úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við hámarksfermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkom­andi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi eða samkvæmt lóðablaði. Nýtingarhlutfall skal að lágmarki vera 0,25. Þó skal aldrei miða álagninguna við hærra nýtingarhlutfall en 0,4 fyrir einbýlishús.
  2. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu bygg­ingar­leyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem bygg­ingar­leyfi tekur til. Gildir þá jafnframt:
    1. Gatnagerðargjald skal innheimt vegna stækkunar byggingar sem nemur fermetra­fjölda stækkunar.
    2. Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur. Gildir þessi regla um byggingar sem samþykkt er byggingarleyfi fyrir allt að fimm árum eftir að leyfi er gefið fyrir niðurrifi byggingar. Að öðrum kosti skal greiða fullt gatnagerðargjald.
    3. Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun hús­næðis þannig að hún færist í hærri gjaldflokk, sbr. 4. gr. skal greiða gatna­gerðar­gjald sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða bygg­ingar­leyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.
  3. Sveitarfélagið getur með samkomulagi við eigendur óbyggðra lóða eða lóðasvæða í einka­eigu innan þéttbýlismarka samið um að sveitarfélagið vinni að gatnagerð fyrir viðkomandi lóðir og fari með skyldur vegna gatnakerfisins í samræmi við gildandi lög og skipulag. Sveitar­félagið skal þá verða eigandi að landi undir gatnakerfið. Sveitarfélagið skal með sér­stakri ákvörðun um úthlutun lóðar við gatnakerfi sveitarfélagsins leggja á gatnagerðar­gjald í sam­ræmi við a-lið. Ákvörðun um úthlutun lóðar við gatnakerfi sveitarfélagsins skal fara fram þegar aðkoma að lóð um gatnakerfið er greið.

Hafi gatnagerðargjald verið lagt á í samræmi við a-lið 2. mgr. skal ekki greitt af viðbyggingu nema að því leyti sem viðbyggingin felur í sér hærra nýtingarhlutfall en fyrri álagning byggðist á, þó ekki í tilvikum þar sem hámark skv. 1. mgr. 4. gr. um einbýlishúsalóðir á við.

 

3. gr.

Útreikningur gatnagerðargjalds.

Við álagningu gatnagerðargjalds skv. a-lið 2. mgr. 2. gr. skal gatnagerðargjald reiknað út frá fermetrafjölda skv. tilgreindu hámarksnýtingarhlutfalli lóðar. Sé þess óskað að byggja meira en nýtingarhlutfall lóðar segir til um skal greiða gatnagerðargjald miðað við það nýtingarhlutfall. Um einbýlishúsalóðir gildir þó alltaf, að aldrei skuli miða álagningu við hærra nýtingarhlutfall en 0,4.

Við álagningu gatnagerðargjalds skv. b-lið 2. mgr. 2. gr. skal gatnagerðargjald reiknað út frá raun­fjölda fermetra byggingar, hvort sem um er að ræða viðbyggingu, endurbyggingu, breytingu notk­unar eða önnur tilvik.

Af hverjum fermetra skal greiða ákveðinn hundraðshluta byggingarkostnaðar pr. fermetra vísitölu­húss fjölbýlis eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grund­velli laga nr. 42/1987 um vísitölu byggingarkostnaðar. Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir:

  Einbýlishús með eða án bílageymslu 6,50%
  Par-, rað- og keðjuhús, með eða án bílageymslu 6,00%
  Fjölbýlishús með eða án bílageymslu 4,00%
  Verslunar-, skrifstofu - og þjónustuhúsnæði 5,20%
  Iðnaðar- og geymsluhúsnæði 4,50%
  Aðrar byggingar 3,00%

Fjárhæðir taka breytingum 1. dag hvers mánaðar í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhússins (273.679 kr./m² í nóvember 2022).

 

4. gr.

Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.

Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:

  1. Óeinangruð hús, minni en 15 fermetrar.
  2. Óupphituð svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 fermetrar eða minni.

 

5. gr.

Sérstök lækkunarheimild gatnagerðargjalds.

Umhverfis- og framkvæmdaráði er heimilt skv. 6. gr. laga nr. 153/2006 að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður svo sem vegna þétt­ingar byggðar samkvæmt skilgreiningu í aðalskipulagi, sérstakrar atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði.

Birta skal lista yfir lóðir sem eru til úthlutunar. Á listanum skulu koma fram upplýsingar um hlutfall afsláttar af viðkomandi lóðum, sem ákveðið hefur verið á grunni 1. mgr.

Umhverfis- og framkvæmdaráði er enn fremur heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sér­hæfðs félagslegs húsnæðis, svo sem sambýla fyrir fatlað fólk, þjónustuíbúða fyrir aldraða og félags­legs leiguhúsnæðis enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni. Þinglýsa skal kvöð á umrætt húsnæði um að greiða skuli gatnagerðargjald af því ef það fellur af einhverjum ástæðum ekki lengur undir ákvæði þetta.

Sé meðaldýpt jarðvegs nýskipulagðra og óúthlutaðra byggingarlóða á burðarhæfan jarðveg meiri en 3 metrar frá botnplötu (lægsta gólfi) húss er veittur afsláttur af gatnagerðargjaldi samkvæmt neðan­greindu:

Dýpt undir gólfplötu:

  1. Fyrir hverja 10 cm neðan 2 m frá botnplötu (lægsta gólf) reiknast afsláttur upp á 2%. Heildar­afsláttur verður þó aldrei hærri en 75% af gatnagerðargjaldi lóðar.
  2. Við ákvörðun jarðvegsdýptar niður á burðarhæfan jarðveg skal miða við upplýsingar um leiðsögukóta húss og jarðvegsdýpt skv. mælingu sem staðfestist af starfsmanni Múlaþings.

Afsláttur skv. 4. mgr. er ekki veittur af lóðum á svæðum sem skilgreind eru sem miðbæjarsvæði í aðalskipulagi.

 

6. gr.

Gjalddagar og greiðsluskilmálar.

Gjalddagi gatnagerðargjalds er við lóðarúthlutun. Gjalddagi gatnagerðargjalds í öðrum tilvikum en við úthlutun lóðar miðast við útgáfu byggingarleyfis.

Eindagi gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir gjalddaga.

Að beiðni greiðanda er heimilt að seinka eindaga gatnagerðargjalds þannig að eindagi allt að 75% gjaldsins sé 6 mánuðum eftir gjalddaga og eindagi allt að 50% gjaldsins sé 12 mánuðum eftir gjald­daga.

 

7. gr.

Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

Lóðarhafi leigulóðar og eigandi eignarlóðar ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

 

8. gr.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:

  1. Ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð eða fellur niður, sbr. reglur sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
  2. Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 90 daga, vegna endurgreiðslu skv. a-lið 1. mgr., sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið 1. mgr., en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 90 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.

Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006, sbr. breyt­ingalög nr. 6/2009.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds vegna lóða sem úthlutað var eða byggingarleyfi veitt á, fyrir gildis­töku laga nr. 6/2009 þann 4. mars 2009, skal verðbætt, án vaxta, miðað við vísitölu neyslu­verðs frá greiðsludegi til endurgreiðsludags.

 

9. gr.

Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.

Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Múlaþing og forvera þess fyrir gildistöku gjaldskrár þessarar, svo og skilmála varðandi gatnagerðargjald, sem sveitarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hafa undirgengist, fer eftir þágildandi gjaldskrám.

 

10. gr.

Uppbyggingargjald vegna svæða utan þéttbýlis.

Af leigulóðum utan þéttbýlis í Múlaþingi þar sem ekki er lagt á gatnagerðargjald, en sveitar­félagið kemur að uppbyggingu gatna og úthlutar leigulóðum, skal greiða uppbyggingargjald sam­kvæmt gjaldskrá þessari. Fjárhæð gjaldsins vegna hverrar lóðar reiknast skv. 3. gr. Eindagi gjalds í heild er 30 dögum eftir úthlutun lóðar. Greiðsludreifing er ekki heimil. Byggingarleyfisgjöld og stofngjöld veitna eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í lóðargjaldi. Að öðru leyti gilda sömu ákvæði um uppbyggingargjald og gatnagerðargjald, sbr. 2.–9. gr.

 

11. gr.

Afsláttur á árinu 2023.

Ákvörðun um afslætti af gatnagerðargjöldum og skilyrði fyrir þeim, sbr. 12. gr. laga um gatna­gerðargjald nr. 153/2006, er tekin af umhverfis- og framkvæmdaráði og staðfest af sveitarstjórn.

 

12. gr.

Gjöld vegna byggingarleyfis og -heimildar.

Fyrir hverja framkvæmd sem er háð byggingarheimild eða -leyfi skal innheimt viðeigandi gjald. Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingaerinda, lóðarblað (einungis á úthlutuðum lóðum frá Múlaþingi), ein yfirferð aðaluppdrátta og séruppdrátta, útmæling fyrir lóð, byggingarreit, húsi og hæðarkóta, öryggis- og lokaúttekt (eitt skipti á hvora) og eftirlit byggingarfulltrúa samkvæmt bygg­ingarreglugerð nr. 112/2012.

Tegund byggingar Kr.
Flokkur A: Íbúðar- og frístundahúsnæði  
1.   Einbýlishús 234.636
2.   Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús, pr. íbúð 199.441
3.   Fjölbýlishús, pr. íbúð 117.318
4.   Frístundahús 164.245
Flokkur B: Atvinnu- og þjónustu- og stofnanahúsnæði  
1.   Gólfflötur allt að 500 fermetrar 234.636
2.   Gólfflötur á bilinu 501-1.000 fermetrar 469.272
3.   Gólfflötur yfir 1.000 fermetrar 703.908
Flokkur C: Önnur hús, hvers konar viðbyggingar, bílgeymslur og gripahús  
1.   Nýbygging eða viðbygging allt að 80 fermetrar 117.318
2.   Nýbygging eða viðbygging frá 81-500 fermetrum 211.173
3.   Nýbygging eða viðbygging frá 501-2.000 fermetrum 410.613
4.   Nýbygging eða viðbygging yfir 2.000 fermetrum 703.908
Flokkur D: Annað  
1.   Breytingar á mannvirki: útlitsbreytingar og innra skipulag yfir 5% af hjúpfleti   70.391
2.   Niðurrif eða afskráning mannvirkja   41.061
3.   Endurnýjun byggingarleyfis eða -heimildar   16.425

 

13. gr.

Afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála.

Gjalddagi afgreiðslu- og þjónustugjalda vegna mannvirkjamála miðast við útgáfu viðkomandi vottorða og er ákveðinn samhliða því að önnur þjónusta er veitt.

  Tegund þjónustu Gjald í kr. Athugasemdir
1 Eftirlit, úttekt og skráning vegna lausafjármuna í óleyfi 38.186 Eftirlit, úttekt og skráninga byggingarfulltrúa vegna geymslu lausafjármuna, sbr. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012
2 Útgáfa stöðuleyfis 45.729 Útgáfa stöðuleyfis, sbr. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, í allt að 12 mánuði
3 Lóðarúthlutunargjald 53.570 Greiðist við úthlutun lóðar og er óendur­kræft, þó úthlutun gangi til baka
4 Fokheldisvottorð 21.477  
5 Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt 32.091 T.d. vegna byggingarstiga, stöðu­úttektar, byggingarstjóra- eða meistaraskipta
6 Lokavottorð og lokaúttekt 40.429  
7 Eignaskiptayfirlýsingar – samþykkt og skráning 14.970  
8 Eignaskiptayfirlýsingar – yfirferð 41.061 Eða aðkeypt vinna skv. reikningi
9 Umsagnir vegna leyfisveitinga 32.091 T.d. umsagnir vegna rekstrar- og vínveitingaleyfis o.fl.
10 Yfirferð aðaluppdrátta 26.397 Umfram eina sem er innifalin í gjaldi skv. 12. gr.
11 Yfirferð séruppdrátta 17.598 Umfram eina sem er innifalin í gjaldi skv. 12. gr.
12 Lóðarleigusamningur að beiðni lóðarhafa 29.941 Við bætist þinglýsingarkostnaður
13 Umsýslugjald vegna stofnunar lóða á landi í einkaeigu 29.941  
14 Umsýslugjald vegna útsetningar lóðarmarka að beiðni lóðarhafa á hnitsettri lóð 14.970  
15 Skannaðar teikningar og ljósritaðar teikningar, stærri en A4-blöð     698 Á einnig við um teikningar sem sendar eru rafrænt
16 Skönnun/prentun vottorða, staðfestinga og annarra slíkra skjala í A4 og A3     698 Gjald pr. blaðsíðu
17 Gjöld vegna aðkeyptrar vinnu, t.d. yfirferð séruppdrátta   Samkvæmt reikningi
18 Lágmarksgjald vegna móttöku byggingarleyfisumsóknar 14.970 Ef hætt er við útg. byggingarleyfis skal innheimta lágmarksgjald
19 Breyting á skráningu byggingar 14.970  
20 Afgreiðslugjald vegna tilkynntra framkvæmda 29.941  
21 Staðbundin viðurkenning iðnmeistara eða á starfsemi byggingarstjóra 14.970  
22 Tímagjald skipulags- og byggingarfulltrúa 17.598 Gjald pr. klst.
23 Grenndarkynning 38.107  

Gjöld skv. 12. og þessari grein eru óendurkræf þótt lóðarúthlutun og/eða byggingarleyfi eða -heim­ild falli úr gildi.

 

14. gr.

Gjöld vegna framkvæmdaleyfis og -heimildar.

Innheimta skal gjald fyrir hverja þá framkvæmd sem framkvæmdaleyfi er gefið út fyrir.

Gjald samkvæmt eftirfarandi töflu eru innheimt við útgáfu framkvæmdaleyfis.

  Tegund þjónustu Gjald í kr. Athugasemdir
1 Afgreiðslugjald  7.622  
2 Framkvæmdarleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 152.431    
3 Framkvæmdarleyfi – aðrar framkvæmdir 76.216  
4 Framkvæmdarheimild – minni framkvæmdir 29.941  
5 Eftirlit umfram það sem er innifalið í framkvæmdarleyfisgjaldinu 17.598 Tímagjald aðkeypt vinna, skv. reikningi skipulagsfulltrúa og/eða aðkeypt vinna skv. reikningi
6 Grenndarkynning 38.107  

 

15. gr.

Gjöld vegna vinnu eða breytinga á skipulagsáætlunum.

Sé þörf á að vinna skipulagsáætlun eða gera breytingu á henni vegna leyfisskyldra framkvæmda getur sveitarstjórn innheimt gjald fyrir skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar fram­kvæmdar, samkvæmt eftirfarandi töflu. Gjaldið skal ekki nema hærri upphæð en nemur kostnaði við skipulags­gerðina og kynningu og auglýsingu skipulagsáætlunar og eru einstakir gjaldaliðir því settir fram til viðmiðunar.

Gjalddagi gjalda vegna skipulagsáætlana miðast við það þegar vinna fer fram og/eða kostnaður fellur til.

  Tegund þjónustu Gjald í kr. Athugasemdir
  Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga:    
1 Afgreiðslugjald   7.622  
2 Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36 gr. skipulagslaga   Aðkeypt vinna skv. reikningi
3 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga 182.916   
4 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga 106.701   
  Kostnaður vegna deiliskipulags:    
1 Afgreiðslugjald   7.622  
2 Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38 gr. skipulagslaga   Aðkeypt vinna skv. reikningi
3 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga 182.916   
4 Veruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti sbr. 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga   Aðkeypt vinna skv. reikningi
5 Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 106.701   
6 Óveruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga   Aðkeypt vinna skv. reikningi
7 Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga  76.216  
8 Grenndarkynning  38.107  

 

16. gr.

Ýmis ákvæði.

Öll gjöld önnur en gatnagerðargjald samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu bygg­ingarkostnaðar september 2022, grunnur 2009, 174,1 stig. Endurreikna skal gjöldin í upphafi hvers almanaksárs, á grundvelli vísitölu byggingarkostnaðar í janúar og gilda til loka viðkomandi árs.

Upphæð gjalda skv. 12. og 13. gr. skal taka mið af kostnaði við þjónustu og einstök verkefni og skal byggð á rekstraráætlun þar sem rökstudd eru þau atriði sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggð með lögveðs­rétti í viðkomandi fasteign og eru aðfararhæf skv. 10. tl. 1. mgr. laga um aðför nr. 90/1989. Framkvæmdaleyfisgjöld og gjöld vegna skipulagsvinnu njóta þó ekki lögveðsréttar. Séu gjöld ekki greidd á eindaga skulu reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Kostnaður lóðarhafa vegna lóðar sem er skilað eða byggingarleyfi afturkallað af, vegna atriða er varða lóðarhafa, svo sem hönnunar- og rannsóknakostnaður á lóðinni eða framkvæmdir áður en byggingarleyfi er gefið út, er ekki endurgreiddur af sveitarfélaginu. Staða lóðarhafa fer þá eftir gild­andi verklagsreglum vegna lóðaskila eða öðrum ákvörðunum sveitarstjórnar.

Sé lóð afturkölluð eða byggingarleyfi fellt úr gildi eftir að undirstöður eru fullgerðar, eða á síðari stigum byggingarframkvæmda, skal dómkveðja tvo matsmenn til að verðleggja þær fram­kvæmdir sem unnar hafa verið, enda hafi þær verið teknar út og viðurkenndar af byggingarfulltrúa. Kostnað vegna matsins greiða sveitarfélagið og lóðarhafi að jöfnu. Múlaþing skal leysa til sín lóðina með mannvirkjum á grundvelli mats hinna dómkvöddu matsmanna að frádreginni hlutdeild lóðar­hafa í kostnaði vegna matsgerðarinnar.

 

17. gr.

Heimildarákvæði.

Sveitarstjórn er heimilt að undanþiggja einstök hverfi, götur eða landsvæði ákvæðum 3. gr. að öllu leyti ef sveitarfélagið semur við einn og sama framkvæmdaraðila að taka að sér að byggja öll mannvirki á svæðinu og ganga að fullu frá götum, bifreiðastæðum, opnum svæðum o.s.frv. Í slíkum tilfellum skal framkvæmdaraðili greiða sveitarsjóði sem nemur að minnsta kosti 15% af útreiknuðu samanlögðu gatnagerðargjaldi til að standa straum af kostnaði við tengigötur. Sveitarsjóður skal eftir sem áður yfirtaka rekstur þeirra gatna sem lagðar eru með framangreindum hætti.

 

18. gr.

Samþykkt og gildistaka.

Gatnagerðargjald byggist á lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006 og reglugerð um gatna­gerðargjald nr. 543/1996.

Byggingarleyfisgjald og afgreiðslu- og þjónustugjöld vegna mannvirkjamála byggjast á 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.

Gjöld vegna framkvæmdaleyfa og vinnu við skipulagsáætlanir byggjast á skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. 20. gr. laganna, sjá einnig 18. gr., sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 14. desember 2022, öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Við gildistöku þessarar gjaldskrár fellur úr gildi gjaldskrá nr. 540/2022.

 

Múlaþingi, 16. desember 2022.

 

Björn Ingimarsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 3. janúar 2023