Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 290/2024

Nr. 290/2024 19. febrúar 2024

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi, nr. 448/2014.

1. gr.

Almenn ákvæði.

2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þving­unar­aðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023. 

 

2. gr. 

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/385 frá 19. janúar 2024 um að koma á þvingunaraðgerðum gegn þeim sem styðja ofbeldisverk Hamas-samtakanna og samtakanna Palestínskt íslamskt Jihad (PIJ), greiða fyrir þeim eða gera þau möguleg, sbr. fylgiskjal 14.
  2. Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/386 frá 19. janúar 2024 um að koma á þvingunaraðgerðum gegn þeim sem styðja ofbeldisverk Hamas-samtakanna og samtakanna Palestínskt íslamskt Jihad (PIJ), greiða fyrir þeim eða gera þau möguleg, sbr. fylgiskjal 15.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þving­unar­aðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópu­sambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 68/2023.

 

3. gr. 

Viðurlög. 

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

  

4. gr. 

Gildistaka o.fl. 

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 19. febrúar 2024.

 

Bjarni Benediktsson. 

Martin Eyjólfsson. 

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 5. mars 2024