Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 15/2024

Nr. 15/2024 3. janúar 2024

SAMÞYKKT
um stjórn Húnaþings vestra.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra er skipuð sjö fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt kosningalögum.

 

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Sveitarfélagið er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni sveitarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

 

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið annast þau lögmæltu verkefni sem því eru falin í lögum, sbr. leiðbeinandi auglýs­ingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Sveitarfélagið vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Sveitarfélaginu er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þess, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

 

II. KAFLI

Um sveitarstjórn.

4. gr.

Hlutverk sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn fer með stjórn Húnaþings vestra samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, annarra laga og samþykkt þessari.

Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur, ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

 

5. gr.

Verkefni sveitarstjórnar.

Meðal verkefna sveitarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, byggðarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir, skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endur­skoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitar­félaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
  3. Að setja sveitarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða sveitarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana þess, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjár­hags­áætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitar­stjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuld­bindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að samþykkja og hafa eftirlit með gerð og framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustu­samn­inga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
  10. Að setja sveitarfélaginu málstefnu skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga.
  11. Að móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú ár á eftir um það þjónustustig sem sveitar­félagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum sveitar­félagsins, sbr. 130. gr. a. sveitarstjórnarlaga.
  12. Að staðfesta erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem m.a. er kveðið á um hlutverk og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og samþykktir sveitarstjórnar.

 

6. gr.

Ný sveitarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi sveitar­stjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af kosningalögum. Nýkjörin sveitar­stjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni sveitarstjórnar­innar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í sveitarstjórn fer aldurs­forseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

 

7. gr.

Kjör oddvita og varaoddvita.

Á fyrsta fundi kýs sveitarstjórn oddvita og einn varaoddvita. Kjörtímabil oddvita og varaoddvita er hið sama og sveitarstjórnar. Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef oddviti eða varaoddviti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi.

Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meiri hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlut­kesti.

Þegar að lokinni kosningu oddvita skal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti og oddvita.

Tilkynna skal kosningu oddvita og varaoddvita til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að því loknu.

 

III. KAFLI

Fundir sveitarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn heldur reglulega fundi sveitarstjórnar í fundarsal Ráðhúss Húnaþings vestra, annan fimmtudag í mánuði sem ekki ber upp á almennan frídag og skulu þeir að jafnaði hefjast kl. 15.00 nema nýkjörin sveitarstjórn ákveði annan tíma, sbr. 11. gr. þessarar samþykktar. Ef reglubundinn fundur lendir á lögboðnum frídegi færist fundurinn fram um einn dag nema annað sé ákveðið.

Sveitarstjórnarfundi er heimilt að halda með rafrænum hætti þannig að hluti sveitarstjórnar­fulltrúa eða allir taki þátt með rafrænum hætti.

Aukafundi skal halda þegar oddviti eða sveitarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess.

Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, breyta fundarstað og/eða fundartíma enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.

Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar vegna sumarleyfis.

 

9. gr.

Boðun sveitarstjórnarfunda.

Sveitarstjóri boðar fund sveitarstjórnar.

Fundarboð skal berast sveitarstjórnarfulltrúum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast sveitarstjórnarfulltrúum svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en sólarhring fyrir fund.

Fundarboði skal fylgja dag­skrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitar­stjórnar­fulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

Fundarboð og gögn má senda með rafrænum hætti.

 

10. gr.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar oddvita og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarstjórnar, svo og ráðningu sveitarstjóra og helstu stjórnenda sveitar­félagsins og endurskoðanda þess.
  2. Fundargerðir byggðarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölulið hér að framan og þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri eða oddviti ákveða að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Sveitarstjórnarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra skriflega eða með rafrænum hætti a.m.k. fjórum sólarhringum fyrir fund til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.

 

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi sveitarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvenær sveitarstjórnar­fundir eru haldnir, sbr. 8. gr. sam­þykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með auglýsingu á vefsíðu sveitar­félagsins um fyrirhugaða fundi sveitarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um sveitarstjórnarfulltrúa, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

 

12. gr.

Opnir fundir sveitarstjórnar.

Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Oddviti eða sveitarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitarstjórn.

 

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Sveitarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur sveitarstjórnarfulltrúa sé við­staddur á fundi.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.

 

14. gr.

Fjarfundir.

Sveitarstjórnarfulltrúa er heimilt að taka þátt með rafrænum hætti í fundi sveitarstjórnar og nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins. Þegar sveitarstjórnarfulltrúi tekur þátt í fundi með raf­rænum hætti skal hann vera staddur í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum sveitar­félagsins. Að öðrum kosti skal varamaður boðaður á viðkomandi fund. Tryggja skal jafna möguleika allra fundar­manna til þátttöku á fundi og í atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að fylgjast með því sem þar fer fram og öryggi samskipta milli fundarmanna.

Fulltrúar í nefndum sveitarfélagsins hafa sömu heimildir og sveitarstjórnarfulltrúar skv. 1. mgr.

Um framkvæmd fjarfunda að öðru leyti gildir auglýsing um leiðbeiningar um fjarfundi sveitar­stjórnar og leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórna, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitar­stjórnar­laga.

 

15. gr.

Tvær umræður í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þá skal sveitarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

 

16. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

I.    Fundarsköp.

Meginreglur fundarskapa skulu vera eftirfarandi.

  1. Fundarstjórn. Oddviti stjórnar umræðum á fundum sveitarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta. Oddviti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum sveitarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar.
  2. Vald oddvita. Skylt er sveitarstjórnarfulltrúa að lúta valdi oddvita í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef sveitarstjórnarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal oddviti víta hann. Ef sveitarstjórnarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur oddviti lagt til við sveitar­stjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðu­laust.
    Ef sveitarstjórnarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði oddvita eða almenn óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á sveitarstjórafundi raskar fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi oddvita þarf til að taka myndir í fundarsal sveitarstjórnar.
  3. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema sveitarstjórn eða oddviti ákveði að önnur röð skuli höfð. Oddviti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra sveitar­stjórnar­fulltrúa þau afbrigði.
  4. Málfrelsi sveitarstjóra. Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögu­rétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn.
  5. Málfrelsi. Sveitarstjórnarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitar­stjórnar.
    Sveitarstjórnarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða sveitarstjóra eða framsögumann svo og sveitarstjórnarfulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður oddviti í hvaða röð þeir tala.
    Sveitarstjórnarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað.
  6. Ávarp ræðumanns. Sveitarstjórnarfulltrúi skal beina máli sínu til oddvita.
    Sveitarstjórnarfulltrúi skal ávarpa einstaka sveitarstjórnarfulltrúa með fullu nafni.
    Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
    Ekki má lesa upp prentað mál nema oddviti leyfi.
  7. Hve oft má tala. Sveitarstjórnarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutn­ings­maður tillögu eða framsögu­maður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Sveitarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
  8. Ræðutími. Ef oddviti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrár­tillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnar­fulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi kveður sér hljóðs.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Sveitarstjórnarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðauka­tillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp. Oddviti sker úr því hvernig atkvæða­greiðslum um tillögur skuli hagað.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handa­uppréttingu. Sveitar­stjórnarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Oddviti biður þá sveitar­stjórn­ar­fulltrúa sem sam­þykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafna­kall svarar sveitarstjórnarfulltrúi, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarfulltrúi óskar og sveitarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
    Sveitarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitar­stjórnar­laga varðandi kynjahlutfall.

II.   Ritun fundargerða.

Í fundargerð skal getið númers fundar, hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir ráða og nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitar­stjórnar um hvaða ráð og nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.
Fundargerð skal skráð í tölvu. Í lok fundarins skal fundargerð undirrituð af fundarmönnum. Taki sveitarstjórnarfulltrúi þátt í fundi með rafrænum hætti, sbr. 14. gr. samþykktar þessarar, er heimil rafræn undirritun sem uppfyllir skilyrði laga um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti nr. 55/2019. Skulu þá allir fundarmenn undirrita fundargerðina rafrænt.
Fundargerð skal birt og vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins í samræmi við lög á hverjum tíma.
Sjá nánar um fundarritun í auglýsingu ráðherra um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitar­stjórna, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

17. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Um hæfi sveitarstjórnarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í með­ferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveita­r­stjórnar­lögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleið­ingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfir­manns ef eðli máls þykir ekki gefa tilefni til slíks.

Í öðrum tilvikum en samkvæmt 1. mgr. ber sveitarstjórnarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitar­félagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins.

Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

18. gr.

Varamenn í sveitarstjórn.

Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.

Sameiginleg framboð geta þó komið sér saman um aðra skipan við val varamanna og skal það tilkynnt í upphafi kjörtímabils, sbr. ákvæði 3. og 4. mgr. 21. gr. sveitar­stjórnar­laga.

 

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur sveitarstjórnarfulltrúa.

19. gr

Skyldur sveitarstjórnarfulltrúa.

Sveitarstjórnarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varafulltrúum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitar­félagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum sveitarstjórnarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar.

Sveitarstjórnarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

Sveitarstjórnarfulltrúa ber að gegna sveitarstjórnarfulltrúastörfum sínum af alúð og sam­visku­semi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins.

 

20. gr.

Réttur sveitarstjórnarfulltrúa.

Sveitarstjórnarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Sveitarstjórnarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá sveitarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Sveitarstjórnarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum sveitarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.

Vilji sveitarstjórnarfulltrúi ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.

 

21. gr.

Aðgangur að gögnum.

Vegna starfa sinna í sveitarstjórn á sérhver sveitarstjórnarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upp­lýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöll­unar í sveitarstjórn.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.

Óski sveitarstjórnarfulltrúi gagna sem liggja fyrir í stjórnsýslu sveitarfélagsins skal beina þeirri ósk til sveitarstjóra eða staðgengils hans. Tiltaka skal í beiðn­inni hvaða gögnum óskað er eftir og/eða um hvaða málefni þau fjalla. Miða skal við að aðgangur sé veittur innan 7 daga frá móttöku beiðninnar.

Sveitarstjórnarfulltrúi á ekki rétt á að taka gögn eða afrit af gögnum af skrifstofu sveitarfélagsins nema að því marki sem felst í ákvæðum upplýsingalaga um afhendingu gagna og afrita. Ef umbeðin gögn eru óvenju viðamikil er jafnframt heimilt að bjóða sveitarstjórnarfulltrúa að kynna sér gögnin á skrifstofu sveitarfélagsins.

Ef beiðni sveitarstjórnarfulltrúa varðar viðkvæma persónulega hagi einstaklings sem ekki er til umfjöllunar í sveitarstjórn, er heimilt að neita um afhendingu gagna og upplýsinga.

Við afhendingu gagna skal gæta sérstaklega að því að unnið sé í samræmi við lög um persónu­vernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

 

22. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem sveitarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

23. gr.

Lausn frá störfum.

Telji sveitarstjórnarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við sveitarstjórn að hún:

  1. létti af honum störfum eða,
  2. veiti honum lausn úr sveitarstjórn um tiltekinn fyrirframákveðinn tíma eða til loka kjör­tímabils.

Þegar sveitarstjórnarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en sveitarstjórnarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir sveitarstjórnarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi og getur ekki tekið aftur sæti í sveitarstjórn á kjörtímabilinu taki hann aftur búsetu í sveitarfélaginu. Missi sveitarstjórnarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn. Ef sveitar­stjórnar­fulltrúi missir fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

 

24. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í sveitarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur sveitarstjórnarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra sveitarstjórnarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í sveitarstjórn á þeim fundi. Aðal­maður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal vara­maður hans taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi.

 

25. gr.

Þóknun o.fl.

Sveitarstjórnarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarfulltrúa og fundarstaðar sveitarstjórnar skal sveitar­stjórnarfulltrúi fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Sveitarstjórnarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

 

26. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur sveitarstjórnarfulltrúa, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í sveitarstjórn.

 

V. KAFLI

Byggðarráð.

27. gr.

Kosning byggðarráðs.

Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðalmenn og jafnmarga varamenn í byggðarráð til eins árs. Aðalmenn í sveitarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í byggðarráð.

Sveitarstjórn kýs formann og vara­formann byggðarráðs úr hópi kjörinna byggðarráðsmanna.

Byggðarráð getur ráðið sér fundarritara utan byggðarráðs. Kosning í byggðarráð skal vera leyni­leg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað.

 

28. gr.

Fundartími byggðarráðs.

Byggðarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku á mánudögum kl. 14.00.

Aukafundi skal halda ef sveitarstjóri, formaður byggðarráðs eða a.m.k. 1/3 byggðar­ráðsmanna óska þess.

 

29. gr.

Boðun funda byggðarráðs.

Sveitarstjóri undirbýr byggðarráðsfundi í samráði við formann byggðarráðs.

Sveitarstjóri sér um að byggðarráð sé boðað til fundar með skriflegu eða rafrænu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.

Geti byggðarráðsmaður ekki sótt fund tilkynnir hann forföll til sveitarstjóra og óskar eftir því að varamaður verði boðaður.

 

30. gr.

Stjórnun byggðarráðs.

Formaður byggðarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar byggðarráðs.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í byggðarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver byggðarráðsmanna óskar þess.

Sveitarstjóri eða staðgengill hans annast fundarritun. Um ritun fundargerða byggðarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitar­stjórnar, sbr. 16. gr.

Byggðarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum ein­stakra fundarmanna á fundum.

Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi byggðarráðs ef þess er óskað. Heimilt er að boða aðra á fundi byggðarráðs til viðræðna um tiltekin mál.

 

31. gr.

Áheyrnarfulltrúar í byggðarráði.

Framboðsaðila sem fulltrúa á í sveitarstjórn en nær ekki kjöri í byggðarráð, er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til þátttöku á fundum byggðarráðs með málfrelsi og tillögurétt. Þetta á við hafi sveitarstjórn verið kjörin bund­inni hlutfallskosningu.

Áheyrnarfulltrúi og vara­áheyrnarfulltrúi skulu vera aðalmenn í sveitarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

32. gr.

Verkefni byggðarráðs.

Byggðarráð fer ásamt sveitarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.

Byggðarráð ásamt sveitarstjóra og framkvæmdaráði hefur umsjón og eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir sveitarstjórn.

Þá sér byggðarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir sveitarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.

Sveitarstjórn getur með viðauka við samþykkt þessa falið byggðarráði fullnaðarafgreiðslu mála, sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans nema lög mæli á annan veg.

Meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella enda sé eigi um það ágreiningur í ráðinu eða við sveitarstjóra um ákvörðunina og ef lög og eðli máls mæla ekki gegn því.

 

VI. KAFLI

Fastanefndir aðrar en byggðarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir.

33. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir sveitarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og sveitarstjórnar nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Sveitarstjórn skal kjósa formenn og varaformenn fastanefnda á sama fundi og kosning til nefndar­setu fer fram.

Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir umboði sínu þar til nýkjörin sveitar­stjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitar­stjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

 

34. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir sveitarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins og nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skal sveitar­stjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölulið 44. gr. laganna við skipun í við­komandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.

Um nefndarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um fulltrúa í sveitarstjórn.

 

35. gr.

Fundartími fastanefnda.

Fastanefndir sveitarfélagsins skulu halda reglulega fundi einu sinni í mánuði í samræmi við funda­áætlun fyrir sveitarstjórn, byggðarráð og fastanefndir sem sveitarstjórn samþykkir tímanlega fyrir komandi ár hverju sinni. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef sveitar­­stjóri eða a.m.k. 1/3 nefndarfulltrúa óska þess.

 

36. gr.

Valdsvið nefnda og framsal sveitarstjórnar
til fastanefnda á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela nefnd, ráði eða stjórn á vegum sveitarfélagsins fullnaðar­afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarfélagsins, nema lög eða eðli máls mæli sérstak­lega gegn því.

Þegar sveitarstjórn neytir heimildar skv. 1. mgr. skal í viðauka skilgreint um hvaða verkefni er að ræða sem og hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum og birtingu slíkrar ákvörðunar.

Þriðjungur fulltrúa í nefnd, ráði eða stjórn sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu máls, sbr. 1. mgr., getur farið fram á að sveitarstjórn, byggðarráð eða viðkomandi nefnd skv. sam­þykkt þessari, taki ákvörðun í máli.

Við birtingu ákvörðunar skal kynnt að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gætt að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga.

 

37. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir sveitarstjórn til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar.

Ef fundar­gerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar sveitar­stjórnar, eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Ef ályktanir eða tillögur þarfnast stað­fest­ingar sveitarstjórnar ber að taka þær sérstaklega fyrir og afgreiða með formlegum hætti.

Hafi ályktun nefndar, stjórnar eða ráðs í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir, skal ályktun ætíð lögð fyrir sveitarstjórn.

 

38. gr.

Fundir nefnda, ráða og stjórna og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda, ráða og stjórna skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum og trúnaðar skal gætt er varðar ummæli einstakra fundarmanna á fundunum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.

Ósk um opinn fund skal beina til formanns nefndar, sem sker úr um hvort mál á dagskrá fundar heimila opinn fund.

Nefndum er skylt að verða við ósk nefndarfulltrúa um opinn fund, að öllu leyti eða hluta, ef tillaga um slíkt er samþykkt mótatkvæðalaust á fyrri fundi nefndarinnar, svo fremi sem lög eða eðli máls hamla því ekki.

Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við á.

 

39. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Í erindisbréfum fastanefnda skal koma fram hver ritar fundargerðir hjá hverri nefnd fyrir sig. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitar­stjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar.

 

40. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðal­maður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista, taki sæti aðalmanns úr sama flokki eða af sama framboðslista. Röð varamanna á listanum vegna nefndarkosn­ingarinnar skiptir þá ekki máli. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

 

41. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndar-, ráðs- og stjórnarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd, ráði eða stjórn fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd, ráði eða stjórn tekur varamaður hans sæti í nefndinni, ráðinu eða stjórninni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar sveitarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni, ráðinu eða stjórninni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

 

42. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í sveitarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við sveitarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar og málefna­legar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarfulltrúi, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur sveitarstjórnarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

 

43. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Framboð sem hefur fulltrúa í sveitarstjórn og á ekki kjörinn fulltrúa í fastanefnd má tilnefna áheyrnar­fulltrúa til setu í fastanefnd með málfrelsi og tillögurétt og annan til vara.

Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarfulltrúa. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í fasta­nefnd.

 

44. gr.

Þóknun.

Sveitarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati sveitarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Sveitarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnar­fulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitar­félagsins.

 

45. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarfulltrúum er skylt að sækja fundi nefndar.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó samkvæmt eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

 

46. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt við­komandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitar­stjórnar­innar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

Einstaklingar sem taka sæti í nefndum samkvæmt þessari grein þurfa að eiga lögheimili í Húnaþingi vestra.

 

47. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Sveitarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, stjórnir og ráð:

  1. Til eins árs á fundi í júní ár hvert:
  1. Byggðarráð. Þrír sveitarstjórnarfulltrúar sem aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 35. gr. sveitarstjórnarlaga og 27. gr. samþykktar þessarar.
  1. Fastanefndir kosnar til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitar­stjórnar­kosningum:
  1. Kjörstjórn.Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. kosningalögum nr. 112/2021.
  2. Félagsmálaráð.Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Félagsmálaráð fer með lögbundin verk­efni sem tengjast málaflokkum sem undir það falla. Um er að ræða verkefni félags­mála­nefndar, skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lögum um málefni fatlaðs fólks með lang­varandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, að svo miklu leyti sem verkefnin falla ekki undir samning við Skagafjörð um leiðandi sveitarfélag. Auk verkefna sem félags­mála­ráð hefur með höndum samkvæmt lögum og samþykkt þessari, getur sveitar­stjórn falið ráðinu ýmis verkefni með erindisbréfi.
  3. Fræðsluráð.Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Fræðsluráð fer með lögbundin verkefni sem tengjast málaflokkum sem undir það falla. Um er að ræða verkefni skólanefndar skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, málefni leikskóla skv. lögum um leikskóla nr. 90/2008, málefni tónlistarskóla skv. lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, og íþrótta­mál skv. íþróttalögum nr. 64/1998. Þá annast fræðsluráð hlutverk fag- og eftirlitsnefndar með starf­semi skólabúðanna að Reykjum í Hrútafirði. Auk verkefna sem fræðsluráð hefur með höndum samkvæmt lögum og samþykkt þessari, getur sveitarstjórn falið ráðinu ýmis verkefni með erindis­bréfi.
  4. Skipulags- og umhverfisráð.Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Skipulags- og umhverfis­ráð fer með lögbundin verkefni sem tengjast málaflokkum sem undir það falla. Um er að ræða verk­efni skipulagsnefndar skv. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, byggingarmál skv. lögum um mann­virki nr. 160/2010, brunavarnir skv. lögum um brunavarnir nr. 75/2000, og verk­efni náttúru­verndar­nefndar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Auk verkefna sem skipulags- og umhverfisráð hefur með höndum samkvæmt lögum og samþykkt þessari, getur sveitarstjórn falið ráðinu ýmis verkefni með erindisbréfi.
  5. Landbúnaðarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Landbúnaðarráð fer með lögbundin verkefni sem tengjast málaflokkum sem undir það falla. Um er að ræða yfir­stjórn fjallskilamála skv. lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986, refa- og minkaeyðingu skv. lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spen­dýrum nr. 64/1994, og búfjárgirðingar skv. girðingar­lögum nr. 135/2001. Landbúnaðarráð sér einnig um gerð tillagna um viðhald og endur­bætur á styrkvegum í sveitarfélaginu. Auk verkefna sem landbún­aðar­ráð hefur með höndum samkvæmt lögum og samþykkt þessari, getur sveitar­stjórn falið ráðinu ýmis verk­efni með erindisbréfi.
  6. Fjallskilastjórnir. Þrír aðalmenn og þrír til vara fyrir hverja fjallskiladeild og skulu þeir vera úr hópi þeirra sem upprekstrarrétt eiga á viðkomandi svæði.
  7. Veituráð. Þrír fulltrúar og þrír til vara. Veituráð fer með málefni vatnsveitu, fráveitu, hita­veitu og gagnaveitu, í samræmi við lög um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, orkulög nr. 58/1967 og lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009. Auk verkefna sem veituráð hefur með höndum samkvæmt lögum og sam­þykkt þessari, getur sveitarstjórn falið ráðinu ýmis verkefni með erindisbréfi.
  1. Fulltrúar í aðrar nefndir, ráð, stjórnir og samstarfsverkefni. Kjörnir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum eða þegar beiðnir um til­nefn­ingar berast. Kjörtímabil fer eftir samþykktum viðkomandi samstarfsverkefnis eða félags:
  1. Almannavarnanefnd Húnavatnssýslna. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt lögum um almannavarnir nr. 82/2008.
  2. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.Tveir þingfulltrúar og tveir til vara skv. sam­þykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  3. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.Fulltrúar kosnir samkvæmt sam­þykktum sam­takanna.
  4. Stjórn Jarðasjóðs Vestur-Húnavatnssýslu.Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt sam­þykktum sjóðsins.
  5. Stjórn Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna.Einn aðalmaður og annar til vara sam­kvæmt samþykktum safnsins.
  6. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands.Einn aðalmaður og annar til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
  7. Fulltrúaráð Farskóla Norðurlands vestra.Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt sam­þykktum skólans.
  8. Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra. Einn aðalmaður og annar til vara.
  9. Stjórn Reykjaeigna. Byggðarráð og varamenn byggðarráðs til vara.
  10. Stjórn Verslunarminjasafns á Hvammstanga. Einn aðalmaður og annar til vara.
  11. Stjórn Félags áhugamanna um endurbyggingu Riishúss. Tveir aðalmenn og tveir til vara sam­kvæmt samþykktum félagsins.
  12. Stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra. Einn aðalmaður og annar til vara.
  13. Húsnefnd Félagsheimilisins Ásbyrgi. Tveir aðalmenn og tveir til vara.
  14. Húsnefnd Félagsheimilisins Víðihlíð. Tveir aðalmenn og tveir til vara.
  15. Öldungaráð. Öldungaráð er skipað sjö aðalmönnum og sjö til vara, þar af skipar sveitar­stjórn þrjá aðalmenn og þrjá til vara. Aðrir fulltrúar eru skipaðir af Félagi eldri borgara og heilsu­gæslunni. Öldungaráð starfar á grundvelli 2. mgr. 38. gr. laga nr. 40/1991 um félags­þjón­ustu sveitarfélaga.
  16. Ungmennaráð. Ungmennaráð skal starfa í samræmi við ákvæði 2. mgr. 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Hlutverk þess er m.a. að vera sveitarstjórn til ráðgjafar um málefni ungs fólks í sveitar­félaginu. Sveitarstjórn setur reglur um hlutverk og skipun ráðsins í erindisbréfi ungmennaráðs.
  17. Samráðshópur í málefnum fatlaðs fólks. Einn fulltrúi í samræmi við samning um leiðandi sveitar­­félag í málefnum fatlaðs fólks.
  18. Framkvæmdaráð samnings um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk.Einn fulltrúi í samræmi við samning um leiðandi sveitarfélag í mál­efnum fatlaðs fólks.
  19. Barnaverndarþjónusta.Samkvæmt samningi um rekstur barna­verndar­þjónustu á Mið–Norður­landi, sbr. auglýsingu nr. 1627/2022, fer sveitarfélagið Skagafjörður með verkefni barna­verndar­þjónustu samkvæmt 10. gr. barna­verndar­laga nr. 80/2002 sem ekki eru falin öðrum.
  20. Framkvæmdaráð samnings um rekstur barnaverndarþjónustu á Mið-Norðurlandi.Einn fulltrúi í samræmi við samning um rekstur barnaverndarþjónustu á Mið-Norðurlandi sbr. auglýsingu nr. 1627/2022.
  21. Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs landsbyggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmis­ráðs er fimm ár.
  1. Verkefnabundnar nefndir:

Sveitarstjórn eða byggðarráð getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum eða til að vera ráðgefandi fyrir fastanefndir í málefnum tiltekinna hópa. Liggja skal fyrir erindisbréf um hlutverk viðkomandi nefndar þegar skipað er í hana. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.
Einstaklingar sem taka sæti í nefndum samkvæmt þessari grein þurfa ekki að hafa náð aldri til að njóta kosningarréttar og þurfa ekki að eiga lögheimili í Húnaþingi vestra.

 

48. gr.

Endurupptaka mála.

Eftir að nefnd, ráð eða stjórn hefur tekið ákvörðun og hún hefur verið tilkynnt, á aðili máls rétt á því að mál sé tekið fyrir að nýju ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggt á atvikum sem hafa breyst verulega frá því ákvörðun var tekin, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Beiðni um endurupptöku máls skal beina til byggðarráðs og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila var eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina.

 

VII. KAFLI

Sveitarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

49. gr.

Ráðning sveitarstjóra.

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími sveitarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjör­tímabil sveitarstjórnar.

 

50. gr.

Hlutverk sveitarstjóra.

Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórn­sýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna. Sveitar­stjóri í samráði við oddvita sveitarstjórnar ákveður hver skuli gegna störfum sveitarstjóra í forföllum hans.

Sveitarstjóri undirbýr fundi byggðarráðs og sveitarstjórnar, semur dagskrár og boðar til funda. Hann á sæti á fundum sveitarstjórnar og byggðarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt, nema hann sé kjörinn fulltrúi í byggðarráð og sveitarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum ráða, stjórna og nefnda sem sveitarstjórn skipar, með sömu réttindum.

Sveitarstjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda sveitarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum.

Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitar­félagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.

Sveitarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitar­stjórnarinnar þarf til.

 

51. gr.

Framkvæmdaráð.

Framkvæmdaráð sveitarfélagsins er skipað sveitarstjóra sem skal vera æðsti yfirmaður ráðs­ins. Auk sveitarstjóra sitja sviðsstjórar í ráðinu. Hlutverk framkvæmdaráðs er m.a. að hafa ásamt byggðar­ráði og sveitarstjóra eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semja drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggja fyrir sveitarstjórn.

 

52. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður og veitir þeim lausn frá starfi. Auk sveitarstjóra falla eftirfarandi störf undir skilgreiningu á að vera hluti af æðstu stjórn­unar­stöðum: Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, sviðsstjóri fjöl­skyldu­sviðs, skólastjórar grunn­­skóla, leikskóla og tónlistarskóla og slökkviliðsstjóri.

 

53. gr.

Ráðning annarra starfsmanna.

Um ráðningu annarra starfsmanna er vísað til ákvæða mannauðsstefnu sveitarfélagsins.

 

54. gr.

Framsal sveitarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela einstökum starfsmönnum fullnaðar­afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarfélagsins, nema lög eða eðli máls mæli sérstak­lega gegn því.

Starfsmaður sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu getur ávallt farið fram á það að sveitarstjórn, byggðarráð eða viðkomandi nefnd taki ákvörðun í máli.

Þegar sveitarstjórn neytir heimildar skv. 1. mgr. skal í viðauka skilgreint um hvaða verkefni er að ræða sem og hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.

Sveitarstjórn og byggðarráð skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt ofangreindu og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem eru teknar á grundvelli hennar. Þessi heimild hefur þó ekki áhrif á almennar heimildir starfsmanna sveitarfélagsins til töku ákvarðana sem varða daglegan rekstur og þjónustu sveitarfélagsins og teljast leiða af stöðuumboði þeirra.

Aðili máls skal beina kröfu um endurupptöku máls skv. 1. eða 2. mgr. til byggðarráðs.

Við birtingu ákvörðunar skal kynnt að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga.

 

55. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn sveitarfélagsins og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara sam­kvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

 

56. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni, ákvæðum ráðningarsamninga, mannauðsstefnu og jafnréttisstefnu.

 

VIII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

57. gr.

Fjárstjórnarvald sveitarstjórnar.

Einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitar­félagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undan­­tekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölulið.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

 

58. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Sveitarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Byggðarráð leggur skv. 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjár­heimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitar­sjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.

Sveitarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.

 

59. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem sveitarstjórn tekur skv. 57. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt við­auka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstaf­anir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitarstjórnarinnar.

Þrátt fyrir 2. og 3. mgr. er í reglum um framlagningu viðauka kveðið á um heimildir sveitar­stjóra og/eða sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs til tilfærslu launakostnaðar og annars rekstrar­kostn­aðar, millifærslu milli deilda, og um heimildir til millifærslu fjárfestinga milli verkefna í sam­ræmi við reglugerð nr. 121/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, sbr. 4. gr. fylgi­skjals III.

 

60. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og reglna sem settar eru á grundvelli ákvæðisins.

 

61. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkis­tryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitar­stjórnarlaga.

Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Um heimildir sveitarfélagsins til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitar­stjórnarlaga.

 

62. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um árs­reikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reiknings­skila­venju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af byggðarráði og sveitarstjóra og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

 

63. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Sveitarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endur­skoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitar­stjórnar­laga.

 

IX. KAFLI

Samvinna við önnur sveitarfélög og samningar um starfrækslu verkefna.

64. gr.

Samvinna sveitarfélaga.

Sveitarstjórn er heimilt að eiga samstarf um starfrækslu verkefna við annað eða önnur sveitar­félög og framselja vald til töku ákvarðana um rétt og skyldu manna ef skilyrði 93. gr. sveitarstjórnar­laga eru uppfyllt. Fer um slíkt samstarf skv. IX. kafla sveitarstjórnarlaga og sérlögum sem við eiga.

 

65. gr.

Samningar við einkaaðila.

Sveitarstjórn er heimilt að gera samninga við einkaaðila um framkvæmd á þjónustu og öðrum verkefnum fyrir sveitarfélagið, enda sé áætlað fyrir viðkomandi verkefni í fjárhagsáætlunum sveitar­­félagsins, sbr. 100. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar reglur stjórnsýsluréttar, gilda um þá stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér að annast.

 

X. KAFLI

Samráð við íbúa.

66. gr.

Sveitarstjórn skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika til að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúningi stefnumótunar, sbr. ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga.

Sveitarstjórn skal sérstaklega vinna að því að íbúar sveitarfélagsins geti fengið greinar­góðar upplýsingar um áætlanir sem sveitarfélagið hefur til meðferðar og önnur mál sem hafa verulega þýðingu fyrir sveitarfélagið. Í því skyni verði eftir því sem best hentar veittar upplýsingar á heima­síðu sveitarfélagsins, dreifibréf send á heimili í sveitar­félag­inu eða haldnir borgarafundir.

 

67. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef þriðjungur þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk sveitarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæða­greiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

 

68. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur sett samkvæmt 9. og 18. gr. sveitar­stjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi sam­þykkt um stjórn Húnaþings vestra nr. 588/2019.

 

Innviðaráðuneytinu, 3. janúar 2024.

 

F. h. r.

Aðalsteinn Þorsteinsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.

 

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 17. janúar 2024