Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 375/2019

Nr. 375/2019 30. mars 2019

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, stað­fest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing; á uppbyggingu náms­brauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntöku­skilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati, sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðal­námskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmat.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef Menntamálastofnunar https://mms.is/stadfestar-namsbrautalysingar.

2. gr.

Heiti námsbrautar Raðnúmer
Bókband, bókbindari, hæfniþrep 3 (19-349-3-8)
Grafísk miðlun, prentsmiður/grafískur miðlari, hæfniþrep 3 (19-274-3-8)
Grunndeild rafiðna, grunnnám starfsgreina, hæfniþrep 2 (19-172-2-5)
Grunnnám rafiðna, grunnnám starfsgreina, hæfniþrep 2 (19-314-2-5)
Húsasmiður, húsasmiður, hæfniþrep 3 (19-295-3-8)
Húsasmíðabraut, húsasmiður, hæfniþrep 3 (19-387-3-8)
Húsasmiðabraut, húsasmiður, hæfniþrep 3 (19-317-3-8)
Ljósmyndun, ljósmyndari, hæfniþrep 3 (19-280-3-8)
Prentun, prentari, hæfniþrep 3 (19-350-3-8)
Rafeindavirkjun, rafeindavirki, hæfniþrep 3 (19-272-3-8)
Rafveituvirkjun, rafveituvirki, hæfniþrep 3 (19-273-3-8)
Rafvirkjabraut, rafvirki, hæfniþrep 3 (19-412-3-8)
Rafvirkjun – samningsleið, rafvirki, hæfniþrep 3 (19-275-3-8)
Rafvirkjun – skólaleið, rafvirki, hæfniþrep 3 (19-373-3-8)
Rafvirkjun – verknámsleið, rafvirki, hæfniþrep 3 (19-276-3-8)
Sjúkraliðabraut, sjúkraliði, hæfniþrep 3 (19-408-3-8)
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (19-411-1-12)
Stoðbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (19-423-1-12)
Stúdentsbraut – opin lína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-410-3-6)
Viðbótarnám til stúdentsprófs, stúdent, hæfniþrep 3 (19-370-3-7)

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 30. mars 2019.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2019