Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 881/2019

Nr. 881/2019 4. október 2019

AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að Orkusalan ehf. skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþágan endurskoðuð eigi síðar en 1. júlí 2022.

2. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþága Hildu ehf. frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott.

3. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi. 

Forsætisráðuneytinu, 4. október 2019.

Katrín Jakobsdóttir. 

Ragnhildur Arnljótsdóttir.

 


B deild - Útgáfud.: 10. október 2019