1. gr.
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna þjónustu sérgreinalækna samkvæmt gjaldskrá þessari, sjá fylgiskjal, sbr. reglugerð nr. 1255/2018 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. IV. kafla laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.
2. gr.
Ef verð þjónustu er lægra en skv. gjaldskrá þessari skal endurgreiðslan miðuð við verð þjónustunnar.
3. gr.
Endurgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands miðast við gjaldskrár sem fram koma í fylgiskjali með gjaldskrá þessari. Einingarverð skal vera 427 kr.
4. gr.
Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, og reglugerð nr. 1255/2018, um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, öðlast gildi 1. janúar 2019.
Sjúkratryggingum Íslands, 21. desember 2018.
María Heimisdóttir.
Ingibjörg K. Þorsteinsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|