1. gr.
Dúnmatsmenn skulu fá greidda þóknun fyrir gæðamat á æðardúni sem hér segir:
Grunngjald fyrir hverja heimsókn/útkall kr. 5.800.
Auk grunngjalds reiknast kr. 270 fyrir hvert metið kíló af fullhreinsuðum æðardúni.
2. gr.
Þurfi dúnmatsmenn að aka sérstaklega á matsstað, skulu þeim greiddir aksturspeningar í samræmi við auglýsingu ferðakostnaðarnefndar nr. 3/2015 frá 11. nóvember 2015, um akstursgjald ríkisstarfsmanna, með síðari breytingum.
3. gr.
Gjaldskrá þessi skal endurskoðuð fyrir 1. júlí ár hvert.
4. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 3. gr. laga um gæðamat á æðardúni nr. 52/2005 og öðlast þegar gildi.
Við gildistöku þessarar gjaldskrár fellur úr gildi gjaldskrá fyrir gæðamat á æðardúni nr. 377/2011.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. ágúst 2016.
Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Rebekka Hilmarsdóttir.
|