Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 553/2023

Nr. 553/2023 24. maí 2023

REGLUGERÐ
um brottfall úreltra reglugerða á fjármálamarkaði.

1. gr.

Eftirtaldar reglugerðir falla brott:

  1. Reglugerð um sjóðfélaga Lífeyrissjóðs bænda og iðgjöld til sjóðsins, nr. 430/1984, með síðari breytingum.
  2. Reglugerð um almennt útboð verðbréfa, nr. 505/1993.
  3. Reglugerð um útibú og umboðsskrifstofu lánastofnunar með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins, nr. 307/1994.
  4. Reglugerð um útibú og umboðsskrifstofu lánastofnunar með staðfestu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, nr. 308/1994, með síðari breytingum.
  5. Reglugerð um prófnefnd vátryggingamiðlara, námskeið og próf til þess að mega stunda miðlun vátrygginga, nr. 350/1997, með síðari breytingum.
  6. Reglugerð um miðlun vátrygginga, nr. 853/1999.
  7. Reglugerð um viðbótareiginfjárlið fyrir viðskiptabanka, sparisjóði, aðrar lánastofnanir og fyrirtæki í verðbréfaþjónustu, nr. 852/2000, með síðari breytingum.
  8. Reglugerð um hámark lána og ábyrgða lánastofnana og fyrirtækja í verðbréfaþjónustu, nr. 34/2002.
  9. Reglugerð um fjárfestingar rafeyrisfyrirtækja, nr. 671/2002.
  10. Reglugerð um heimildir fyrirtækja sem tengjast fjármálasviði og dótturfélaga lánastofnana með staðfestu í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, til að stunda fjármálastarfsemi hér á landi, nr. 244/2004.
  11. Reglugerð um starfsábyrgðartryggingu vátryggingamiðlara, nr. 592/2005.
  12. Reglugerð um próf í vátryggingamiðlun, nr. 972/2006.
  13. Reglugerð um tilkynningar um viðskipti skv. 30. gr. laga nr. 108/2007, um verðbréfa­viðskipti, nr. 191/2008.
  14. Reglugerð um úrskurðarnefnd verðbréfamiðstöðva, nr. 347/2009.
  15. Reglugerð um eftirlit umboðsmanns skuldara með endurútreikningum fjármálafyrirtækja á gengislánum neytenda, nr. 178/2011.
  16. Reglugerð um undanþágur frá gildissviði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2006/48/EB frá 14. júní 2006 um stofnun og rekstur lánastofnana, nr. 942/2011.
  17. Reglugerð um ábyrgðartryggingu verðbréfamiðlana, nr. 320/2013.
  18. Reglugerð um starfsemi innlendra fjármálafyrirtækja í öðru ríki innan Evrópska efnahags­svæðisins, nr. 1030/2014.

 

2. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. maí 2023.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Gunnlaugur Helgason.


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2023