1. gr.
Gjaldskráin skal vera með eftirfarandi hætti, án virðisaukaskatts.
Óendurvinnanlegur og almennur úrgangur 26 kr./kg.
Blandaður og óflokkaður úrgangur 26 kr./kg, auk kostnaðar vegna flokkunar, tímagjald 5.500 kr., lágmarksgjald er 2.750. kr.
Skolp og seyra 10 kr./kg.
Lífrænn úrgangur í urðun 26 kr./kg.
Lífrænn úrgangur í moltu 19 kr./kg.
Fyrir spilliefni, mengaðan úrgang o.þ.h., sem úrvinnslugjald er ekki lagt á, skal greiða samkvæmt eyðingarkostnaði hverju sinni.
Íbúar greiða eftir rúmmáli, eitt klipp af klippikorti sem húseigendur fá afhent samsvarar 0,25 m³. Aukaklippikort fyrir 4 m³ kostar 8.000 kr., miðað er við að 0,25 m³ geti verið allt að 25 kg.
Rekstraraðilar greiða fyrir losun samkvæmt ofangreindu kílóagjaldi fyrir losun á úrgangi í eftirfarandi flokkum.
Flokkur |
Gjaldskylt frá heimilum |
Gjaldskylt frá rekstraraðilum |
Almennur heimilisúrgangur og skyldur úrgangur |
já |
já |
Almennur rekstrarúrgangur |
á ekki við |
já |
Blandaður úrgangur |
já |
já |
Grófur óflokkaður úrgangur sem þarfnast flokkunar |
já |
já |
Óflokkaður úrgangur |
já |
já |
Grófur úrgangur frá framkvæmdum |
já |
já |
Bólstruð húsgögn, dýnur o.þ.h. óendurnýtanlegt |
já |
já |
Bílrúður |
já |
já |
Steinefni frá framkvæmdum |
já |
já |
Vörubretti, kassar og sambærilegt |
já |
já |
Timbur |
já |
já |
Timbur, málað |
já |
já |
Húsgögn ekki ljósmáluð og plasthúðuð |
nei |
já |
Garðaúrgangur |
nei |
nei |
Gras, trjágreinar |
nei |
nei |
Hey frá dýrahaldi |
nei |
nei |
Jarðvegur |
nei |
nei |
Blanda af pappír og umbúðum úr sléttum bylgjupappa |
nei |
nei |
Plastumbúðir og annað plast |
nei |
nei |
Gifsplötur frá framkvæmdum |
já |
já |
Flísar og postulín |
já |
já |
Gler |
nei |
já |
Hjólbarðar |
nei |
nei |
Kapalkerfi |
nei |
já |
Sóttmengað |
já |
já |
Málmar |
nei |
nei |
Spilliefni sem ber úrvinnslugjald |
nei |
nei |
Raftæki af öllum gerðum s.s. þvottavélar, þurrkarar, eldavélar, örbylgjuofnar, tölvur, sjónvörp o.þ.h. |
nei |
nei |
Heyrúlluplast (rúlluplast) |
nei |
nei |
Rafhlöður, rafgeymar |
nei |
nei |
2. gr.
Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjárnámi hjá viðkomandi án undangengins dóms, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.
3. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 11. gr. samþykktar nr. 236/2018 um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarráði þann 9. október 2017 og staðfest af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar þann 12. október 2017 samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998.
Sveitarfélaginu Hornafirði, 26. apríl 2018.
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri.
|