Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 627/2020

Nr. 627/2020 22. júní 2020

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 540/2020, um fiskeldi.

1. gr.

Á eftir orðinu „fjarlægðarmörk“ í 1. málsl. 6. mgr. 18. gr. kemur: sjókvíaeldisstöðvar.

 

2. gr.

Við 1. mgr. 64. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Reglugerð nr. 1170/2015 um fiskeldi fellur úr gildi nema að því er varðar þær umsóknir og þau rekstrarleyfi sem fjallað er um í ákvæði II og III til bráðabirgða í lögum um fiskeldi nr. 71/2008.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 71/2008, um fiskeldi og öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. júní 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 24. júní 2020